þriðjudagur, október 11, 2005

Greyjið Þór Jakobson

Eftir samtal við mömmu í gær þar sem hún mælti eindregið með að ég myndi túna inn á veðurfréttir gærdagsins þá sit ég hér á bókasafninu í hálfgerði hláturskasti en jafnframt næstum með tárin í augunum: Greyjið Þór Jakobson veðurfréttamaður....Þetta var hrikalegt. Auðvitað byrjaði þátturinn á því að tæknimaður í gulum bol hljóp framhjá og einhver kallaði skipanir til Þórs sem auðvitað fór í algjört kerfi. Hann eyddi þar af leiðandi öllum tímanum í að koma sér á réttan veg en allt fór í vaskinn. Hann leit út eins og belja á svelli, dansaði meira að segja lítinn dans í örvæntingu að leita að rétta punktinum sem hann átti að standa á. Það er algjör skandall að undirbúa sjónvarpsmenn svona lítið. Að vissu leiti vil ég bara horfa aftur til gamalla tíma þar sem gamli góði guli kassinn á snúningsvinkil verði tekinn aftur í notkun, þar sem veðurfréttamaðurinn þarf ekkert annað en að kunna snúa kassanum og benda með priki.

By the by: VIKA Í HÖRPU!!!!! "Yes, I know the city like a lover....bá bá bá bá..."

Setningin: "Þessir sófar eru svo æðislegir að þið missið legvatnið. Pleh." (Þrír karlmenn að tala saman)
Tónlistin: Starsailor - Tie Up My Hands
Tímaritið: Empire

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home