Ó well
Úff. Hefði ekki getað ímyndað mér hvað það væri hægt að læra mikið í einu. Man í gömlu góðu dagana þegar maður lærði varla heima og hvað þá að læra til 11 nema ef eitthvað stórkostlegt var að gerast næsta dag. Ég myndi borga mikinn pening fyrir að hætta að læra klukkan 11, the dream has yet to come true. En mér líður samt ágætlega þessa dagana. Hef verið að leiklistast aðeins. Erum að setja upp smá leiksýningu með brúðum, japönskum bunraku brúðum. Alltaf gaman að vera með leiklistarfólkinu.
En núna er bara VIKA þangað til ég hitti Birnu aftur. Uss, ég hreinlega get ekki beðið eftir því. Viltu flýta þér manneskja!! Samt alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, er alveg viss um að áður en ég get sagt "Mig langar til þess að sjá Gone with the Wind í bíó" verð ég komin heim. Undarlegt. En er búin að ákveða það að fyrir project week ætla ég að fara til Víetnam að hjálpa til á munaðarleysingjahæli. Hlakka mikið til, hef alltaf langað til að gera eitthvað svona. Þetta er ekki alveg komið á hreint þannig að ég vil ekki gefa neitt út á það akkúrat núna.
Ó er síðan búin að uppgötva klikkaða hljómsveit sem heitir Saybia og er frá Danmörku (af öllum löndum í heiminum). Alveg mögnuð hljómsveit.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home