mánudagur, apríl 05, 2004

Hringurinn þrengist

Síðustu dagarnir hafa vægast sagt verið frábærir. Allt hefur verið á rólegu nótunum. Lognið á undan prófstorminum. Er búin að fara fjórum sinnum út að borða þessa vikuna með mismunandi fólki. Fór með Caitlín frá Írlandi á ítalskan síðasta þriðjudag þar sem við ræddum um Oxford, þar sem við báðar komumst inn, og allt annað á milli himins og jarðar. Fór síðan með Héctor í bíó á The Passion of the Christ á fimmtudeginum og síðan á McDonalds á eftir. Á föstudaginn fékk Nils mig til að fara í bíó á Calender Grils og þar með "urðum" við að fara út að borða á kaffihúsi á undan. Laugardagurinn endaði síðan með því að slatti af fólki frá Norðurlöndunum enduðu á sama stað og ég og Caitlín fórum saman á. Þannig að ekki hefur þetta verið slæm vika fyrir magann svo mikið er víst.

Á sunnudeginum var challenge day þar sem UWC umsækjendur af Hong Kong svæðinu komu í skólann til að spreyta sig á nokkrum vel völdum þrautum, aðeins meira prógram heldur en kaffiviðtalið heima á Íslandi. Eyddi klukkutíma í að kenna krökkum nokkra íslenska frasa í tungumálakennslu. Íslenska hlýtur að vera fáránlegt tungumál til að læra.... allar beyjingarnar á orðunum... hér er stóll um stól.. og svo framvegis... hjálp, ekki gott að vera þau. Sunneva var líka að hjálpa mér og við ákváðum að gera þetta aðeins skemmtilegra með því að kenna þeim "höfuðherðarhnéogtær"... við sungum náttúrulega með eins og okkur er einum lagið, eða í þessu tilviki ólagið.

Verst var samt að heyra frá Héctor, en hann sá um að taka viðtal við hóp af nemendum, hvað margir hugsa einungis um að Li Po Chun sé stökkpallur í háskóla svo sem Harvard og Yale. Sorglegt að vita að þessir nemendur eigi eftir að komast inn í skólann bara út á fjölskyldusambönd, peninga og einkannir. UWC á að vera miklu meira heldur en þetta... ekki bara útungunarvél fyrir lögfræðinga og endurskoðendur, með fullri virðingu fyrir báðum starfsgreinum... vesen...

á enn eftir að skrifa umsögn um The Passion of the Christ en það mun ég gera seinna, klukkan er næstum hálf þrjú hérna og það er víst skóli á morgun... en morgundagurinn ber margt í skauti sér og þar ber hæst á bógi (er þetta orðatiltæki?) upphaf kvikmyndahátiðar í Hong Kong og ég læt mig auðvitað ekki vanta. Á morgun er það Elephant eftir Gus Van Sant, hann fékk leikstjóraverðlaun Cannes fyrir stykkið.

Ah, gleymdi næst um... titill þessa pistill tengist því að ég er mjög nálægt því að verða búin að ákveða framtíð mína í sambandi við háskólanám. Ég er orðin handákveðin að fara til Bretlands en það eina sem á eftir að ákveða er hvort að ég taki LSE eða Edinborg sem skóla númer tvö ef svo ske kynni að ég komist ekki inn í Oxford út af einkunnum.... þessi ákvörðun verður tekin í þessari viku.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home