miðvikudagur, maí 05, 2004

Oj

Hef komist að því að "orðið" oj er alveg einstaklega skemmtilegt í notkun. Íslenska er besta tungumálið, alveg á hreinu. Ástæðan fyrir því að mér datt þetta í hug er vegna þess að undanfarna daga hef ég notað það mjög mikið: Er að læra fyrir stærðfræðipróf. Það er ssssvvvoooo leiðinlegt, ekkert lýsir því betur en OJ! Ekki beint í besta skapinu, held að það hjálpi ekki mikið að hlusta stanslaust á Tom Waits, ekki beint uppliftandi tónlist...hrmph... ok Sigríður bara nokkrir dagar eftir, tíu dagar... síðan Macau, frí, skemmtun, góður matur og FRELSI... oj

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home