mánudagur, maí 03, 2004

The Viking Trilogy by Sigríður Jónsdóttir og Nils Korsvoll

Jáh, núna er bara að bíða og sjá. Ég og Nils höfum sett stefnuna á heimsfrægð í Hollywood og ekkert minna. Erum með pottþétt plan: Bíómynd um uppgötvun og byggð Íslands. Erum meira að segja búin að "casta" í öll mikilvægu hlutverkin, Hollywood style. Eigum bara eftir örlítil smáatriði eins og að skrifa handritið en það er aukaatriði. Allaveganna, hérna eru aðalhlutverkin:

Ingólfur - Liam Neeson (hefur þetta góða, heilbrigða, karlmannlega víkingaútlit)
Helga, konan sem verið er að berjast um - Claire Danes, eða Jessica Skinner (stelpa frá USA, hefur hárið)
Duke - Sean Connery (röddin, bara röddin)
His wife, man ekki hvað hún heitir - Anjelica Huston
Their three sons - Heath Ledger, Colin Farell og Ben Affleck (Ben deyr fyrstur, he he)
Oracle of the North - Maggie Smith (vildum bara virkilega hafa hana með, verður alltaf að vera eitthvað mythical svona með)

svo er náttúrulega aðalatriðið eftir, nöfnin á myndunum. Eins og er komið í ljós verður allt að vera í trilógíum og auðvitað getum við ekki gert neitt minna. Nöfnin eru:

Norway - The Beginning
Iceland - The Continuation
America - The End

Auðveld og grípandi. Ég tel okkur hafa algjöran blockbuster! Við eyddum klukkutíma í að ræða um þetta í hádeginu í dag. Það mikilvæga er að við erum komin með grunnhugmynd að þessu öllu. Hitt er bara details....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home