laugardagur, apríl 17, 2004

Hinn frábæri dagur (Last day of Compulsorary classes.)

Vitið þið, eins væmið og það hljómar, þá væri það kannski betra að segja 'Hinn fullkomni dagur' því að dagurinn í gær var mjög nálægt því að vera það. Svona til að byrja með þá var þetta síðasti kennsludagurinn í skólanum og það er hefð fyrir því, eins og t.d. í FS, að útskriftarnemendurnir dressi sig upp. Ja, það var ekki beint þema hjá okkur en það var samt of skemmtilegt. Stelpurnar klæddust jakka, skyrtu og bindi en síðan var bætt við stuttbuxum og strigaskóm. Strákarnir fengu aðeins erfiðari verkefni: Drag. En það er samt ekki byrjunin á sögunni, heldur byrjar hún kvöldið áður. Leiklistarhópurinn ákvað og hittast til að böggla saman smá leikþætti til að sýna skólanum á morgun. Það var svo gaman að spjalla við alla saman. Ótrúlegt hvað þessi hópur er góður. Sátum í klukkutíma og rifjuðum upp allt það sem hafði gerst í leiklist síðustu tvö árin. Eins erfið og þau hafa verið eru sum atvik sem eru of fyndin - "You have to react. But don't react." Mjög svo mikilvægar leiðbeiningar frá Maurice.

Þegar ég hafði dregið sjálfan mig fram úr rúmminu, klætt mig í kostúmið fór ég upp í A-block að hitta alla. Það var ótrúleg sýn. Svona fyrir það fyrsta hafði Nils ákveðið að taka valkyrjuna kverkataki og var klæddur í hefðbundið svart norskt pils og tekið tvo plast hjálma og búið til "stál brjóstahaldara." Ég hélt að ég yrði ekki eldri. Mætti fleiri og fleiri karlmönnum sem voru hreint út sagt óborganlegri. Reyndar er svolítið sorglegt og pirrandi að segja frá því að ég komst að þeirri niðurstöðu að alltof margir af þeim sem ég sá litu betur út í pilsi heldur en ég. Ekki beint mikið egóbúst þar, en nógu fyndið svo að ég get alveg fyrirgefði þeim. Leikritið heppnaðist síðan stórkostlega vel, fólk hreinlega missti sig vegna hláturs. Maurice var líka skemmt, hann tók þessum skotum ekkert alltof illa. Ég og Vincent ákváðum síðan svona spontaniously að herma eftir Ming. Ó, það var svo fyndið. Vincent er snillingur í að herma eftir fólki. Heyrði það síðan seinna að Ming hafi ekki stokkið bros á vör. Gott.

Var bara í tveimur tímum í gær og báðir voru frekar léttir og löðurmannslegir. Sátum og spjölluðum í leiklist og borðuðum kökur í náttúrufræði. Eftir að síðasti tíminn var búinn hittust allir annars árs nemarnir við sundlaugina. Það er hefð fyrir því að þeir hendi sér allir ofan í, ennþá í fötunum. Þegar klukkan var hálf tvö hentu um 80 manns sér ofan í laugina þar sem við bustluðum lengi vel. Úff hvað það er erfitt að synda í háum sokkum. Ég og Nils hentumst síðan niður í bæ þar sem við sáum 'Japanese Girls at the Harbor' Þetta er þögul Japönsk mynd og var hún barasta nokkuð mögnuð. Skemmtilegt var líka að það var live tónlist með, reyndar var hún ekkert alltof góð en var samt gott að hafa.

Við fórum síðan aftur í skólann þar sem síðasta kaffihúsakvöldið var. Þemað þetta kvöld var 70s og ég henti mér í hippabúningin. Var reyndar svolítið erfitt að vera þarna því að ég skildi þá að þetta var í síðasta skiptið sem haldið verður kaffikvöld í ár. Rosalega skrýtin tilfinning en gaman samt. Eftir að hafa sungið og trallað í um klukkutíma fóru allir og skiptu um föt og héldu á leið til Lee On, blokkakverfi, inn í 7/11 búð þar sem keypt var smá alkóhól. Við sátumst síðan niður og spjölluðum. Var reyndar komin í rúmið á miðnætti en það breytti svo sem litlu. Það var bara svo hrikalega gaman í gær að ég kemst varla yfir það...

ps. Ég skal reyna að setja myndir á netið fljótlega, þið verðið að sjá valkyrjubúninginn hans Nils;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home