sunnudagur, apríl 11, 2004

PASSÍUSÁLMUR NR. 51

Sá þetta á einhverri bloggsíðunni og fannst alveg tilvalið að herma aðeins eftir og setja Passíusálm nr. 51 eftir Stein Steinarr upp á síðunni.

Passíusálmur nr. 51

Á Valhúsahæðinni
er verið að krossfesta mann.
Og fólkið kaupir sér far
með strætisvagninum
til þess að horfa á hann.

Það er sólskin og hiti,
og sjórinn er sléttur og blár.

Þetta er laglegur maður
með mikið enni
og mógult hár.

Og stúlka með sægræn augu
segir við mig:

Skyldi manninum ekki leiðast
að láta krossfesta sig?


Og talandi um ljóðskáld þá er mín að fara á ritunarnámskeið með þjóðskáldi Breta Andrew Motion núna á fimmtudaginn. Verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um hver þessi maður er en eftir mikinn uppgröft á google er ég orðin aðeins vitrari. Hlakka til að sjá hvað kemur út úr þessu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home