föstudagur, apríl 09, 2004

Misheppnun í miðborginni

Ekki var þetta best heppnaðasti dagurinn í Hong Kong. Ákvað að fara með Nils niður í bæ þar sem hann ætlaði með tölvuna sína í viðgerð, er eitthvað slöpp greyjið. Ákváðum að taka rútuna í staðinn fyrir lestina út af því að það heppnaðist svo vel síðast. Mistök númer eitt. Föttuðum ekki alveg að það var frídagur í dag þannig að við lentum í hálftíma umferðarteppu sem er alveg hrikalegt í HK því að í rútunum eru sjónvörp sem spila ekkert nema auglýsingar. The horror...the horror... Jæja loksins komumst við niður í Mon Kok en þá uppgötvuðust mistök númer tvö: Nils hafði gleymt kvittuninni sinni þannig að góður möguleiki var á því að það yrði ekki litið á tölvuna í búðinni. En það breytti víst ekki miklu þegar við komumst að mistökum númer þrjú: Búðin sem við þurftum að fara í var ekki í Mon Kok heldur í Suam Shi Po, nokkrum lestarstöðvum í burtu. Þá gáfumst við endanlega upp og fengum okkur ís í staðinn. Ekki nóg með það heldur fórum við líka og keyptum fleiri miða á kvikmyndahátíðina hér í bæ, það væri synd að gera það ekki er svo svakalega ódýrt (um 200 krónur miðinn)... skrifa listann af myndunum sem ég er að fara sjá seinna...

og eitt svona spes fyrir Hörpu: Ég fann myndina Oscar í dag!!! Erum við að fara horfa á hana þegar ég kem heim? I think so! "You are an ox and a moron." Snilld í poka.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home