miðvikudagur, nóvember 09, 2005

It's alive...It's alive...

Gooden tag ya alle. Vá, er alveg á síðasta snúning þessa dagana...partí partí á laugardeginum, innflutningspartí þar sem nokkrir flugeldar ákváðu að bilast. Ég og Chris tókum það að okkur að sjá um smá flugeldasýningu fyrir gestina sem endaði með því að einn flugeldurinn skaust yfir vegginn, yfir götuna og beint á hús. Munaði litla putta að hann hefði endað inn um glugga hjá einhverjum. Skoppaði af veggnum, niður á götu og sprakk svona 10 metra frá gangstéttinni. Vorum alveg viss um í smá tíma að við hefðum valdið hjartaáfalli hjá einhverri gamalli ömmu. En allt fór vel. Smá drama.

Argh, fór síðan á Tracy Chapman á sunnudaginn. Ó minn Gvöð á himnum. Sat í þriðju sætaröð, sá hana fullkomnlega....ekki nóg með það heldur spilaði hún ÖLL, á meina ég ÖLL, uppáhaldslögin mín:

For My Lover (lag nr. 2, ég dó)
Talkin' 'bout A Revolution
Behind The Wall (ein á sviði, fékk tár í augun, klikkað lag)
Baby Can I Hold You
Fast Car (það eru engin orð)
The Promise (ekki frægt lag og trúði því ekki þegar hún tók það...gæsahúð allstaðar)
Another Sun (breytti því og kom frábærlega út)
Give Me One Reason (síðasta lag eftir "standing ovation", getur ekki endað betur)


Síðustu tvær vikurnar hef ég verið á kafi í mannfræðiverkefni sem ég var að skila fyrir hálftíma. Þetta var hópverkefni þar sem við áttum að útskýra hvernig fólk hegðar sér í á vissum svæðum. Við völdum Waverley járnbrautastöðina og eyddum mörgum klukkutímum að horfa á og spjalla við fólk. Þurftum síðan að skila 4000 orða skýrslu, klikkun. En það sem bjargaði öllu saman var að ég var með geðveikum hóp, kom rosalega vel saman. Er boðið í mat í kvöld þar sem við ætlum að fagna þessu öllu saman. Ef að þið viljið lesa þessa snilld sem er verkefnið endilega látið mig vita....

Anyhoo....er frekar heiladauð í dag...bleh, ekki gott að horfa svona mikið á CSI, sé vísbendingar út um allt.

Tónlistin: The Postal Service - We Will Become Silhouettes
Kvikmyndin: Frankie & Johnny
Þátturinn: CSI (úff, skegg er hættulegt)
Bókin: The Foundation - Isaac Asimov

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home