Pavarotti
Gvöð minn almáttugur. Ég er algjörlega orðlaus. Horfði einhver á opnunarathöfnina fyrir Ólympíuleikana í kvöld? Það gerði ég. Og þeir voru ekkert spes. Fullt af furðulegum búningum sem voru ekkert ofboðslega merkilegir, ballet sem var svo minimal að það var varla hægð að segja að þetta væri dans, alltof mikil áhersla á hönnun í staðinn fyrir fólk og fljúgandi fólkið var algjörlega stolið frá Sydney. Underwhelming. Fyrir utan þrennt.
1. Konurnar sem báru inn fánann. (Fyrir utan Isabellu Alliende, aldrei verið fan)
2. Peter Gabriel að syngja Imagine (Fyrir utan furðulegu ræðuna frá Yoko Ono)
3. Pavarotti að syngja Nessum Dorma (Fyrir utan alls ekki neitt, fullkomið)
Ég hef sjaldan séð annað eins. Að henda upp heilu óperusviðið plús sinfóníuhljómsveit á svona stuttum tíma. Og spennan að sjá hvað var bakvið tjaldið. Það virtist vera svo augljós þegar það var dregið frá. Enginn annar en Pavarotti hefði getað gert þetta. Enginn. Og svo söng hann Nessum Dorma eftir Puccini úr Turandot. Það var gæsahúð út um allt og ég væri að ljúga ef að ég segði að það hefði ekki komið tár í augu. Líka bara að horfa á hann. Hann var sjálfur að bresta í grát. Algjörlega ótrúlegt. Þetta var svipað og að sjá Muhammed Ali kveikja í Ólympíueldinum í Atlanta 1996, allt það sem leikarnir eru um. Er enn orðlaus, verð að sjá þetta aftur.
En samt verð ég að bæta smá neikvæðni og gagnrýni inn í. Leikarnir eiga að standa fyrir skilningi og friði í heiminum þar sem fólk frá öllum heiminum kemur saman og tekur þátt. Hvernig er hægt að réttlæta allan þann pening sem er eytt í þetta á meðan fólk sveltur annarstaðar? Af hverju geta lönd eins og USA sent svona marga fyrir utan þá einu ástæðu að landið hendir hrúgum af peningum í þáttökuna? Af hverju finnst sumum íþróttamönnum þeir vera neiddir til að taka styrkjandi lyf? Vegna þessa að allir elska sigurvegara. Bara nokkrir af mörgum púnktum.
En ég verð að segja að ég var mjög hrifin að friðarskilaboðunum sem var þungamiðja opnunarhátíðarinnar. Imagine var aðallagið og konur báru inn fánann.
Hlutirnir eru ekki alslæmir, en samt langt frá því að vera góðir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home