Eartha Kitt invites you to a purrfectly delightful evening...
Í síðustu viku gerðist örlítill atburður, varla þess virði að minnast á það. Var að vafra um á netinu og rakst á vefsíðu, bara venjulega vefsíðu, varla mikilvæg. Á þessari dulitlu vefsíðu barst mér frétt: Eartha Kitt heldur tónleika í London. Ég fékk áfall. Í alvöru, ég fékk áfall. Mátti litlu muna að ég myndi æpa yfir mig á bókasafninu af hreinni gleði, en mjög fljótlega rann á mig tvær grímur. Hver myndi vilja fara/gæti farið með mér. Þannig að að í örlitlu neikvæðniskasti ákvað ég að dreyfa sorginni og skrifa Nils e-mail um þennan stórkostlega viðburð sem ég gæti ekki farið á. Svar kom fljótlega: Hvenær förum við?! Hann hreinlega bauð mér með sér! Ætlaði að redda miðum og gistingu í London, það eina sem ég þurfti að gera var að mæta á svæðið. Það er ekki hægð að biðja um betri vini heldur en þetta, bara ekki séns. Og þannig gerðist þetta. Akkúrat og nákvæmlega núna eru bara fjórir dagar þangað til ég verð uppáklædd, í London, með Nils og á ERTHU KITT TÓNLEIKUM! Er hreinlega að springa úr spenningi. Búin að kaupa mér tvo diska með henni (bæta við safnið) og kaupa lestarmiða til swinging London! Fer á föstudagskvöldi með næturlestinni og kem aftur til Edinborgar að kvöldi sunnudags.
Það skonda við þetta að í spenningnum er ég búin að tilkynna öllum sem ég þekki að ég sé að fara á tónleika með Earthu og viðbrögðin hafa verið tvenn: 1) Hver er hún? 2) Er hún ekki löngudauð?/Er hún enn á lífi! Hef ekki enn tekist að svara spurnigu nr. 1 með öðru nema VEISTU EKKI HVER HÚN ER? Sorglegt að fólk skuli hafa lifað í hversu mörg ár sem þau hafa lifað án þess að vita hver hún er. En já, hún er enn á lífi og í fullu fjöri þó að áttræð sé. Hún er einstakur skemmtikraftur og hörku kona. Já, hún er einfaldlega Meistari Eartha, ekkert flókið með það. Og ég er á leiðinni á tónleika með henni á laugardaginn, sem verða síðustu tónleikarnir sem hún heldur í þessu holli. Get ekki, get ekki, get ekki beðið!
Annars er bara mest af því sama héðan úr E-burgh. Vinna, skóli, vinna, skóli og síðan einstaka bíómyndin inn á milli. Og hef verið að uppgötva snilldina sem The West Wing er (mamma alltaf á undan sinni samtíð). Er reyndar á leiðinni í kvöld á pöbbakvöld hjá alþjóðanemendunum í Edinborg með gamalli vinkonu frá Li Po Chun, ætti að verða skemmtilegt. Er akkúrat núna í upplestrarfríi en verð að nota það sem best, þarf að skila tveim ritgerðum eftir helgi. Alltaf snillingur í að tímasetja hlutina, kemst ekki hjá því að gera hlutina eins erfiða og hægt er. En það gengur nú samt ágætlega. Það er líka frí í skólanum hjá Kjartani og við nýttum daginn í dag til að fara í dýragarðinn í Edinborg. Vissuð þið að það eru til míníflóðhestar? Nei, ekki ég heldur. Uppgötvun dagsins, það er þó eitthvað.
Sjónvarpsþátturinn: The West Wing
Bíómyndin: I Heart Huckabees (smá vonbrigði en Dustin Hoffman og Lily Tomlin bjarga öllu)
Bókin: Ritual Theory/Ritual Practice - Catherine Bell
Uppgötvunin: Pigmy Hippos
Tónlistin: Walkin' Blues - Robert Johnson
Drykkurinn: Ye Olde Pinte

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home