Núna er mælirinn fullur
Þetta er tekið af MBL:
Sepp Blatter,formaður Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, leggur til að knattspyrnukonur taki að leika í aðskornum stuttbuxum í því skyni að laða fleiri áhorfendur á völlinn.
Ég á barasta ekki til orð. Fyrst láta KARLARNIR sem sitja í íþróttaráðunum blakkonur klæðast búiningum sem eru eins og þeir séu málaðir á þær og síðan þetta. Hvað halda þeir eiginlega að þeir séu? Þeir gætu alveg eins sagt að karlar sem spila fótbolta ættu að klæðast sundskýlum. Er viss um að fleiri konur færu á leiki Real Madrid til að sjá Beckham klæðast svoleiðis (þetta er ekki grín)! Hvað er eiginlega málið. Að dirfast að koma upp með svona hræsni og það frá formanni FIFA. Hann ætti að vera rekinn fyrir svona kynjamisrétti, en auðvitað verður það ekki gert. Ég er svo reið að ég næ varla andanum. Ég get bara ekki séð húmorinn í þessu því að honum er fúlasta alvara og ef að hann fengi að ráða þá myndi hann gera þetta.
Er íþróttaheimurinn tilbúinn að leggjast svona lágt. Af hverju ætti kvennafótbolti að vera leiðinlegri heldur en karlafótbolti? Satt, hann er öðruvísi en samt alveg eins skemmtilegur. Ein ástæðan fyrir því að fótolti er yndisleg íþrótt er að því að það skiptir ekki máli hvernig þú lítur út á meðan þú spilar, það mun ekki gera þig að góðri íþróttakonu. Og by the way það myndi ekki hjálpa til að gera þennan fótbolta "skemmtilegri" ef að konurnar geta ekki hreyft sig fyrir spandexi.
Úff, verð aðeins að jafna mig. Karlaveldi er þetta sem að við búum í, ég er búin að fá nóg!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home