fimmtudagur, maí 06, 2004

Jæja....

Ekki var þetta stærðfræðipróf til að hrópa húrra fyrir, svo mikið er meira en víst. Ég gerði þó mitt besta og reyndi að fylla út sem mest. Gekk svona la la, held ég. Meh, allir voru sammála um að þetta próf hafi verið sérstaklega erfitt, meira að segja fólkið sem fékk einhverja kennslu í þessu, sem sagt fólkið sem var ekki hjá Ming í bekk. Hrmph, en þessu er allaveganna lokið og síðara prófið er á morgun síðan er stærðfræði barasta BÚIN. Úff hvað ég er fegin. Kom upp með ágætist myndlíkingu í dag sem lýsir setu í stærðfræði prófi nokkuð vel að mínu mati: Hreinsunareldurinn væri skemmtilegri.

Hugsa bara til þess að það er einungis vika þangað til að þessu er bara lokið. Núna er bara að rumpa og hrempa þessu af og taka sig virkilega á í lærdóminum. Smá hvatning væri mjög nice akkúrat núna;) Ó og by the way, sá alveg BRILLIANT myndbút í dag. Mamma, Harpa og allir hinir sem fíla breskan húmor við verðum að sjá þessa: Undertaking Betty

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home