þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Læra, læra, læra....etc.

Jæja, núna er aldeilis komið að því: Próf! Mannfræði 8. desember (vei, á afmælisdaginn, verður varla betra, kaldhæðni) og Félagfræði 10. desember. Ritgerð fyrir þennan föstudag um Sanskrit leiklist(indverska leiklist). Horfi með tár í augum á bunka af bókum sem ég á enn eftir að lesa. Held að ég sé komin á lista yfir nemendur sem taka flestar bækur á bókasafninu. Ekki svo minnst á fólkið sem er búið að borga mest í sektir.....annað hvert skiptið sem ég kem á bókasafnið byrja ég á því að fara að afgreiðsluborðinu og borga....hrmph, sé fyrir mér allar bækurnar sem ég gæti keypt fyrir þá peninga.

Lenti reyndar í mjög undarlegu atviki í dag á bókasafninu. Var að leita að bókum fyrir ritgerðina mína og endaði með því að finnast ég vera eins og karakter úr Kafka bók. Fann númerið á bókinni og leið mín lá á hæðina þar sem hana mátti finna. Hæðin geymir allar þær bækur sem eru ekki mikið notaðar og númerið var frekar skrýtið. En með bókasafnsfræðingablóðið mitt var ég alveg viss um hvert ég var að fara. Þar hafi ég algjörlega rangt fyrir mér. Hrmph. Stóð fyrir framan hilluna sem ég vissi að bókin væri og greip í tómt. Horfði aftur og aftur á tölurnar en ekki var bókin þarna. Þið verðið að sjá fyrir ykkur þúsindir af bókum í endalaust mörgum hillum margar hverjar á tungumálum sem ég hef aldrei heyrt um. Endaði með því eftir marga hringi að spurja einhvern um að hjálpa mér. Viti menn, maðurinn labbaði beint að réttu bókinni og ég veit enn ekki hvernig hann fór að því. Þvílíkir töframenn sem þessir bókasafnsverðir eru!

Aukaplan fyrir þessa viku að fara á jólaleikrit stúdentaleikhússins sem heitir: Troy the Panto! sem er grínleikrit um Illiad kviðuna. Ætti að vera algjörlega frábært. Síðan er búið að plana leikhúsferðir með Hörpu um jólin, snilld.

Well, hrúga af bókum bíður mín...Kafka kafka kafka.....

"There is a theory that states: "If anyone finds out what the universe is for it will disappear and be replaced by something more bizarrely inexplicable."There is another theory that states: "This has already happened." - Douglas Adams


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home