laugardagur, nóvember 20, 2004

Það sem gerist...eða ekki...

Vá, er farin að skammast mín smá verð ég að viðurkenna...Er verri hérna með bloggið heldur en í Hong Kong sem er svolítið fáránlegt miðað við að ég var miklu uppteknari þar heldur en hérna í Edinborg. Jah, það er kanski smá lygi...bara upptekin á annan hátt. Ekki misskilja það er alveg FULLT að lesa en svo mikið annað.

Hef t.d. séð meira af leikritum en ég hélt að væri mögulegt á svona stuttum tíma. Bedlam Theatre: http://www.bedlamtheatre.co.uk er stúdentaleikhúsið hjá Edinborgar háskóla og miðstöð skemmtilegs fólks og ódýrra leikrita. Kostar um 400 krónur inn. Snilld í alla staði. Flestir vinir mínir eru líka oftast eitthvað að sniglast þarna í kring, surprise surprise.

Leikrit sem ég hef farið á:

Equus - Peter Shaffer
Glass Minagere - Tennessee Williams
Far Away - Caryl Churchill
Arsenic and Old Lace - Joseph Kesselring
Comic Book Story - Idil Sukan
Phaedra's Love - Sarah Kane
The Bear - Anton Chekov

svo að ég nefni nokkur, þau eru fleiri. Ah sá líka Othello í "alvöru" leikhúsi á miðvikudaginn sem var mjög skemmtilegt. Fór alveg óvart með vini mínum frá Austurríki og fengum mjög ódýra miða. Út af því að við spöruðum svo mikið á miðunum fórum við líka út að borða á tælenskum stað sem var alveg frábært. Undarlegt að hugsa til þess að ég sé ekki að fara til Tælands núna um jólin, yndislegur staður.... hlakka samt alveg rosalega að koma heim.... smákökur, snjór, jól...og auðvitað líka fólkið (já harpa ég er búin að lofa að koma starx heim).

Er búin í prófunum 10. desember þannig að ég mun koma fljótt eftir þann tíma, er ekki alveg viss um hvenær. Fer bara í próf í félagsfræði og mannfræði. Indversk menningarsaga er bara með eitt próf, er nokkuð sátt með það. Skólinn gengur vel. Er búin að skila nokkrum ritgerðum inn og er búin að fá gott fyrir þær. Kennararnir eru yfirhöfðuð ágætir nema kannski sá sem kennir mér indverska menningarsögu. Er í kringum sjötugt held ég, virðist allaveganna vera um það bil, og er mjög svo af gamla skólanum. Menntaður í Oxford og hefur verið að kenna í meira en 30 ár, orðin frekar lúinn sá gamli. En eins og mamma sá í mannfræði þá var kennarinn minn þar algjörlega frábær, ekki svo minnst á svolítið myndarlegur (hehe) þannig að ekki get ég kvartað.

Eftir að Rupert (fartölvan mín) bilaði varð ég að kaupa mér nýja og það er búið og gert. Þvílíkt vesen að vera háður þessum fjanda, en er algjörlega nauðsynlegt að hafa í háskóla. Get ekki ímyndað mér að vera án hennar. Er DVD spilari, Internet, útvarp og allt annað sem er hægt að hugsa sér. Var að missa mig án tónlistar og bíómynda. Talandi um bíómyndir þá skellti ég mér í bíó í dag: After the Sunset með Pierce Brosnan. Erla ef að þú sérð þetta blogg þá skipa ég þér hérmeð að sá þessa mynd NÚNA... þetta er Laws of Attraction nema hvað Pierce er oftast ekki í skyrtu, enough said.

Var að tala við Söru vinkonu mína frá Bandaríkjunum og mér hefur verið tilkynnt að ég eigi að mæta til Wisconsin 8 júlí 2006 til að vera Maid of Honour. Ó já! Sjáiðið þetta ekki fyrir ykkur. Sigríður Jónsdóttir í hvítu brúðkaupi í bleikum ballkjól, já ég líka. Svona til að koma því alveg á hreint þá hef ég algjörlega neitað því að koma fram í svoleiðis marenstertu kjól. Er farin að hlakka hryllilega til.

Talandi um tilhlökkun þá er svolítið RISASTÓRT að gerast rétt handan við hornið, nánar til tekið nýja árið.... ÉG ER AÐ FARA Á RIVERDANCE MEÐ HÖRPU!!! fékk næstum hjartaáfall þegar ég komst að því að ekki einungis er Riverdance að fara til Bretlands heldur að koma til Edinborgar. Er búin að kaupa miða á þriðja bekk fyrir miðju. Nei get ekki einu sinni skrifað meira, er alveg að missa mig... Miðað við hvernig ég og Harpa misstum okkur þegar við fórum saman til Írlands þá sé ég algjöra snilld fyrir mér.... vá fæ enn flassbakk frá því þegar við vorum á írska pöbbakvöldinu og þegar við misstum báðar næstum því af flugvélinni heim til Íslands.... ég þurfti að kaupa mér American Beauty á spólu og Harpa fór í vitlausa vél... aaahhh memories...

Jæja, áður en ég segji eitthvað sem ég ætti ekki að segja á prenti (hint hint Harpa) þá hætti ég þessu núna, er víst að fara í parte hjá fólki í Bedlam... ekki alveg eins flott og Caitlín vinkona mín sem var boðin í matarboð hjá forseta íhaldsflokksins í Oxford en jæja hún er enn að leita að eiginmanni fyrir mig þannig að ég fyrirgef henni.

pg. Fanney þetta blogg er tileinkað þér:)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Very same day installation financial products can be a
sort of online payday loans furnished for your
thirty day period phase with critical cases. These
people don’t necessitate any evidence of situations’ urgent situation, neither
of the two they are worth giving surety, credit
ranking nor other stuff. Perhaps you may program a vacation, various very
important buying or perhaps take care of your enterprise payments – Equivalent day setting up loans just might help
you in different occurrences. At present such mortgages are offered internet.


My web blog; pożyczki bez bik

6:13 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home