miðvikudagur, maí 12, 2004

Þrír og hálfur tími

Var að koma úr söguprófinu. Hjálp ég er búin að sitja í þrjá og hálfan tíma í prófum í dag. Þvílíkt og annað eins. Byrjaði á því að fara í náttúrufræðipróf í morgun sem gekk bara nokkuð vel, hef ágætis tilfinningu með það. Fór síðan í tvö sögupróf eftir hádegi. Hið fyrsta gekk bara ágætlega líka, tókst vel upp, en hið seinna er ekki eins skemmtileg saga að segja frá. Voru tvær ritgerðir sem mér fannst ég ekki ganga nógu vel, en ég reyndi.... Verður bara að koma í ljós í júlí, vesen er þetta með tilboðið frá Oxford. Ég meina þau vilja mann, er það ekki nóg? Nei nei ég verð að ná einhverju lágmarki í viðbót, kröfur eru þetta. En eins og ég hef alltaf sagt er það alls ekkert verra í neinn stað að fara til Edinborgar, Oxford er bara plús. Núna er í alvöru lokakippurinn eftir og þvílíkur lokakippur sem það er: 150 mín sögupróf, þrjár ritgerðir, allt úr kínverskri eða japanskri sögu. Held að það verði ekki mikið sofið í nótt, ætla mér að rumpa þessu af og taka þetta með stæl og enda þannig minn prófferil í LPC!

Jamm og svona aukalega þá á hinn mikli Gabriel Byrne afmæli í dag! Ah, ef bara hann myndi taka þátt í Harry Potter, draumur.... Myndir eins og The Usual Suspects, The Man in the Iron Mask og Little Women eru ómissandi í hvert bíómyndasafn (og ég á þær allar, hehe). Oft er það meira að segja hann sem er eini ljósi punkturinn í bíómynd, svo sem Stigmata... hver getur gleymt kragaatriðinu?



"Live every day as if it's your last and one day you'll be right." - Gabriel Byrne

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home