mánudagur, maí 10, 2004

"Nothing happens, nobody comes, nobody goes, it's awful!"

Tel þetta vera eina af bestu setningunum í Waiting for Godot eftir Samuel Beckett. Þetta er svo fyndið, sorglegt og satt allt á sama tímanum. Jæja, þá þarf ég ekki að lesa Streetcar named Desire í áttunda skiptið á tvemur árum. Vá hvað ég er búin að lesa þessar bækur. Eins góðar og þær eru, auðvitað er samt miklu meira varið í að sjá þetta allt á sviði, þá er ég fegin að taka frí frá þessum bókum. Búin að skrifa allaveganna þrjár tímaritgerðir um þessar bækur. Ritgerðin í dag gekk svona la la, ekki eins vel og Paper 1 en ekkert hryllilega, skrifaði allaveganna alveg nógu mikið. Bara spurning um hvort að það sé eitthvað varið í það.

Fékk nefnilega alveg fáránlega létta spurningu: Talaðu um og berðu saman tákn í tvemur eða þremur verkum. Þetta var of auðvelt og IB er aldrei svona létt. Þannig að ég ákvað á einhverju heimspekilegu augnabiliki að taka erfiðu leiðina og er ekki viss um að mér hafi tekist að klára það. Oh jæja, fæ kannski einhver samúðarstig. En núna er ég bókstaflega hálfnuð, allaveganna með fögin. Tvö búin og tvö eftir. Á samt eftir sex próf en er bara búin með fjögur. Ekki spurja, fjandans IB er alltaf með einhverja stæla. Það eru þrjú próf í náttúrufræði sem er ég morgun og hinn, síðan eru þrjú í sögu sem er hinn og daginn eftir hinn (fimmtudaginn á mannamáli).

Vinahópurinn er búin að ákveða að fara á ástralskan jassbar á fimmtudaginn til að fagna, svona eftir að við erum búin að brenna allar glósurnar okkar. Oh hvað ég get ekki beðið... bara þrír dagar í viðbót....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home