þriðjudagur, maí 11, 2004

Douglas Noel Adams DOA 11. maí 2001



Já í dag eru nákvæmlega þrjú ár síðan þessi mikli snillingur og húmoristi lést af völdum hjartaáfalls, ætla aldrei aftur að nota hlaupabretti(deadly). Undarlegt að hugsa til þess hvað ein manneskja/rithöfundur getur haft mikil áhrif á mann þó að við höfum aldrei hisst. Eitt af því sem ég ætla mér að gera í sumar er að lesa öll verkin hans sem ég er búin að sanka að mér um árin, held að ég sé barasta komin með þau öll sem eitt. Þá verður mikið hlegið og grátið (úr hlátri). Já og by the way í dag er þriðjudagur, já ÞRIÐJUDAGUR!

Annars er mest lítið annað í fréttum, fyrirgefiði öll leiðindin þið fáu hræður sem lesið þetta blogg. En prófin halda bara áfram eins og ekkert hafi gerst í heiminum. Kláraði tvö náttúrufræði próf í dag og gekk ágætlega, ekki svo mikið átak að fara í þau. Gott að þau eru búin, bara tveir prófdagar eftir.

"In the beginning the Universe was created. This has made a lot of people very angry and been widely regarded as a bad move." - Douglas Adams

"There is a theory which states that if ever anybody discovers exactly what the Universe is for and why it is here, it will instantly disappear and be replaced by something even more bizarre and inexplicable. There is another theory which states that this has already happened." - Douglas Adams

It is no coincidence that in no known language does the phrase 'As pretty as an Airport' appear. - Douglas Adams

I may not have gone where I intended to go, but I think I have ended up where I intended to be. - Douglas Adams

42

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home