laugardagur, maí 22, 2004

...

Þvílíkt og annað eins eirðarleysi, er alveg að tapa mér. Finnst vera svo tómt í herberginu mínu, allt farið af veggjunum og búin að pakka. Sit hérna hreinlega og bíð eftir að útskriftin byrji. Eftir allan þennan tíma mun ég loksins bera stúdentshúfuna, það var mikið. Í gær var matur bæði fyrir fyrsta árs nemana og okkur (annars árs nemana). Furðulegt að sitja þarna og vita að ég myndi aldrei aftur fara í mat í salnum okkar... Afneitun er góður vinur þessa dagana... en lítill draumur rættist í gær: Stökk í laugina um miðja nótt, a small swim.

á morgun....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home