mánudagur, mars 13, 2006

Ljúgandi afmælis socialite!

Ég laug, en bara smá. Tókst ekki að skrifa MASSAbloggið um helgina, en ég hef góða ástæðu. Á föstudaginn var styrktarball fyrir leikflokk sem var startað nýlega af vinum mínum. Varð að fara. Á laugardaginn bauð Sara mér í heimsókn á heimavistina sína. Ó jebus! Það eru ekki til orð til að lýsa fegurðinni á þessum stað. Mamma, mér var bara hugsað til Brideshead. Margra hæða höll með hardwood gólfum, málverkum, marmarastigagangi og útsýni yfir eignina sem hefði passað vel við Remains of the Day, beið bara eftir af Anthony Hopkins myndi labba inn og bjóða mér te. Í gær var síðan punkturinn yfir i-ið. Ég tók þátt í "Flash Mob". Þetta er hugmynd sem hefur skotist eins og flugeldur um allan heim. Flash Mob virkar þannig að sms eru send milli vina og kunningja þar sem staður og stund er nefnd þar sem á að hittast og einning verkefni sem þarf að taka þátt í. Að þessu sinni var það koddaslagur klukkan 19:38 hjá National Gallery, sem er á Princes. Auðvitað mættum við, og þvílík geðveiki. Meira en hundrað manns í koddaslag á gangstéttinni að kvöldi til. Fullt af fólki að taka myndir, og enn fleiri að taka þátt. Ég, James, Chris, Kishani, kærastinn hennar, vinir okkar Tom og Tom og Noa (önnur vinkona) hentum okkur í miðja ösina og lago! Þvílíkt kikk og ekki sé nú minnst á gleðina sem fylgir því að vera í koddaslag með tugum af fólki. Var alveg búin restina af kvöldinu, nú er bara að bíða eftir næsta "Flash Mob"....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home