miðvikudagur, maí 10, 2006

Betra er seint...

Jæja, auðvitað ákveð ég að blogga viku áður en ég kem heim. Svoleiðis er ég bara, og þannig verður það að vera. Margar eru þær nú tilkynningarnar en nýjustu fréttirnar er að ég er komin með íbúð fyrir næsta vetur sem er algjört yndi. 49 Lauderdale Street. Takk fyrir púnktur. Endilega skokkið á http://www.streetmap.co.uk , skellið þessari línu inn og glöggvið ykkur aðeins á þessu öllu saman. Er á jarðhæð, sem betur fer, flottur gangur (rauður), gamaldags parket, flott eldhús með útskýni á garðinn bakvið, smá skiki fyrir framan sem gott er að sitja á heitum dögum eins og þessum (20 stig í dag, I kid you not, algjör steikindi) og falleg herbergi. Þetta þýðir einfaldlega að flutningar hefjast í þessari viku, ooohhh hvað ég nenni því ekki. Það eina sem er slæmt við að vera háður bóka- og kvikmyndakaupum er að flytja þetta drasl. Æji, ég meinti þetta ekki.... verð að biðja bókanna afsökunnar, þetta var bara smá pun. Bý með fjórum stelpum...þekki reyndar bara tvær þeirra, Ella og Nadine. Eru báðar mjög fínar og get lofað því að hreinlætið verður aðeins betra á næsta ári. Takið eftir því að ég segji "aðeins".

Annars er þetta ár fljótlega á enda. Trúi því varla. Hefur hlupið áfram eins og kanína með eldflaug á bakinu, það er frekar hratt. Tvö afmæli um helgina, FA úrslitaleikurinn í næstu viku og próflok. Svo inn á milli verð ég að pakka, kveðja fólk og fleira og fleira. Prófin hafa gengið ágætlega en það var rosalega mikið að lesa fyrir South Asian Studies en mjög áhugavert, t.d. um vændi í Indlandi. Það er óviðunnandi hversu margar konur geta ekki séð fyrir sér og sínum nema selja sig.

Oh, ég nenni ekki að fá mér að borða en það verður víst að gerast. Ætla að fara sitja úti í steikjandi hitanum og borða samloku.

Lagið: Nightswimming - REM
Vefsíðan: http://www.10000tw.blogspot.is , loksins er íslensk ljóðlist að takast á flug
Afmælisbarnið: Fred Astaire
Bíómyndin: Flying Down To Rio
Sjónvarpsþátturinn: Extras, ó snilldin, ó snilldin
Tilvitnunin:

Patrick Stewart: I will "Make It So."
[blank look from Andy]
Patrick Stewart: You've seen "Star Trek: The Next Generation?"
Andy Millman: I haven't, no.
Patrick Stewart: Why? Your wife won't let you have it on?
Andy Millman: I'm not married.
Patrick Stewart: Oh, your girlfriend then?
Andy Millman: I haven't got a girlfriend either. I live alone.
Patrick Stewart: You're not married, you haven't got a girlfriend... and you've never watched "Star Trek?" Andy Millman: No.
Patrick Stewart: Good Lord...

- Extras

Patrick Stewart: "But it's too late. Becuase I've seen everything."

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home