One down, one to go.
Undarlegt þegar eitt lítið skref getur mögulega þýtt miklu meira heldur en mér finnst það þýða. Hm, tók fyrsta háskólaprófið mitt í gær, í mannfræði. Það gekk. Punktur. Var ekki viss um hvernig þetta myndi allt ganga og var frekar óörugg verð ég að viðurkenna. Alltaf erfitt að taka próf í nýjum skóla. Skrifaði allaveganna nóg, stanslaust í tvo tíma. Sumt var snúnara en annað og endaði í smá tímahraki. En málið er bara að ég veit ekki hvað ég á að halda því að ég veit ekki alveg hvað kennararnir vilja sjá í þessum prófum. Þannig að þó að ég skrifaði nóg og fannst ég allaveganna vera að reyna koma vissum hlutum á framfæri þá er það eina sem ég get gert er að bíða og sjá til. Félagsfræðiprófið er á morgun og síðan er ég barasta búin. Mjög gott.
Fyrir utan prófið í gær þá var afmælisdagurinn minn mjög rólegur, en mjög góður. Fór út að borða á Marakóskum veitingastað með vini mínum frá Austurríki. Alveg frábært, tek alla þá sem koma að heimsækja mig á þann stað. Fékk símhringingu frá mömmu, frábært powerpoint kort frá Systu (alveg frábært), talaði við Hörpu í símanum, og spjallaði við nokkra góða vini á MSN þar sem Nils mútaði mér til að koma til Noregs með kökubakstri. He he, það virkaði allaveganna. Hef verið að hugsa um að fara til Noregs að heimsækja hann um páskana. Hef aldrei komið til Noregs, er bara farin að hlakka til.
Jæja, próflestur bíður.
Tónninn: Love is here - Starsailor

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home