Próf (og samkvæmishelgi)
Er það ekki best þegar hlutirnir eru óplanaðir? Virkaði svoleiðis þessa helgi, svo mikið er víst. Var búin að ákveða að læra dag og nótt en það endaði alls ekki svoleiðis. Fór á leikrit á föstudeginum sem var algjör snilld. Sá að það var hægt að blanda saman grískum harmleik og zombie bíómyndum, skil ekki enn hvernig þeir fóru að því. Mjög skemmtilegt í alla staði. Á laugardaginn vaknaði ég við símann (ætla ekki að segja hvenær, var ekki beint um morgunin þið skiljið) og var það ekki bara fyrrverandi skólafélagi frá Hong Kong að tilkynna mér að það væri partí hjá UWC liðinu á sunnudaginn. Fór í dag en var frekar stutt, gott að komast í samband samt.
Á laugardaginn var síðan aðalatriði helgarinnar: Jólaball Bedlam leikhússins! Troðið leikhús af fólki, hávær tónlist og flóandi drykkir. Verður það betra? Kom reyndar frekar seint en endaði síðan í leikhúspartíi annarsstaðar. Var hörkugaman... En núna er þetta búið að vísu og lærdómurinn bíður......vesen.....af hverju þurfa próf að vera til? Well, er bara í tveim þannig að ég ætti ekki að vera að kvarta og þetta verður allt saman búið að föstudaginn hvort sem er....og síðan bara heim í heiða dalinn, víkina...wotever.....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home