mánudagur, september 25, 2006

Lítil, rauðhærð stelpa!

Já, í þennan stóra heim er komin lítil, rauðhærð stelpa! Nýfædd og "langsætust" (svo að ég vitni nú í nýbakaða foreldrana). Bestu fréttir í heimi og risabónus að krílið er rauðhært! Gerir mig einstaklega glaða. Get ekki beðið að sjá litlu baunina.

Hún á sama afmælisdag og Will Smith, Michael Douglas, Catherine Zeta-Jones, Christopher Reeve (Súperman), William Faulkner (einn af bestu rithöfundum allra tíma), Michael Madsen (töffari).

Það sem gerðist á þessum degi:


1493 - Christopher Columbus set sail from Cadiz, Spain, with a flotilla of 17 ships on his second voyage to the Western Hemisphere.

1976 - The Rock band U2 forms at a meeting at drummer Larry Mullen's home.

Já, margt merkilegt hefur gerst á þessum degi og núna bætist enn einn stórviðburðurinn við. Er þessi litli dýrðlingur einnig Vog:

Vogin

Árstími Vogarinnar er haustið, þegar litir eru sterkir í náttúrunni og sumarið og uppskeruvinnan er að baki. Veður eru enn ágæt og því góður tími til að sinna félagslífi. Fyrsti mánuður haustsins er rómantískur og það fólk sem fæðist í Vogarmerkinu þykir ljúft, listrænt og félagslynt.

Jafnvægi og réttlæti

Til að skilja Vogina þarf að horfa á 'tákn' merkisins, vogina sem hefur það hlutverk að vega og meta (uppskeruna). Enda er það oft svo að fólk sem fæðist í þessu merki hefur sterka réttlætiskennd. Það er alltaf að leita að jafnvægi og því sem stillir vogina af. En þetta er hægara sagt en gert, og því geta Vogir sveiflast til. Ef of mikið er sett á aðra skálina þá hallar vogin. Fyrir vikið er Vogarfólkið stundum eftirgefanlegt, stundum hart, stundum ljúft, stundum ákveðið. Þetta er leit að jafnvægi, að 'balance'. Sumar Vogir eru vel stilltar, aðrar sveiflast frá einum pól til annars og eru 'brokkgengar' eins og einn ágætur maður sagði.

Samvinna og sjálfstæði

Það sem einkennir framkomu Vogarinnar, eða það sem hún reynir að birta útávið, er ljúfleiki. Öðrum megin á skálinni er ég og hinu megin við. Þetta er spurning um jafnvægi á milli mín og þín. Jafnvægi á milli sjálfstæðis og samvinnu er eitt af því sem Vogin leitar eftir. Til að samvinna gangi vel reynir hún að koma vel fram við aðra og notar þá ljúfleika, bros og sannfæringarmátt orðanna. En þær Vogir eru einnig til sem færast of mikið í átt til ég-sins og þá er valtað yfir umhverfið. Einnig er talað um hina 'ljúfu frekju', eða þá Vog sem stendur sterk bæði í ég-inu og samvinnunni. En vissulega vilja og reyna flestar Vogir að vera fágaðar, kurteisar og yfirvegaðar.

Félagsmálamaður og pælari

Stjórnandi Vogarinnar er Venus og 'frumþátturinn' er loft. Venus er pláneta fegurðar og samvinnu, og loftið er táknrænt fyrir rökhugsun. Vogir eru því oft félagsmálamenn, listamenn, pælarar og pólitíkusar sem berjast fyrir réttlætismálum eða boða ákveðna heimssýn og kenningar. Stundum sameinast þetta allt í einum og sama manninum.

Það sem örvar Vogina

Til að endurnýja og viðhalda lífsorku sinni, þarf Vogin að dvelja í félagslega og hugmyndalega lifandi umhverfi. Það þýðir að hún þarf að hitta fólk sem örvar hugsun hennar. Hún þrífst illa í einangrun og andlegu tómarúmi. Hún tapar orku við slíkar aðstæður. Vogin þarf á fólki, félagslífi og samvinnu að halda. Það á reyndar við um flest fólk, en þetta skiptir öllu máli fyrir Vogina og varðar það að næra lífskraftinn.
Þegar talað er um 'Vogina' og 'Vog', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Vogarmerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home