mánudagur, mars 12, 2007

Ritgerðir, umsóknir og vitiði hvað....fleiri umsóknir

Ég er að skrifa umsókn. Já, aftur. Langar mig mikið til að vita nákvæmlega hvað ég hef skrifað margar umsóknir á minni stuttu æfi. Er þetta eðlilegt? Búin að skrifa allaveganna þrjár á síðasta mánuðinum, held ég. Ég hreinlega veit ekki hvað ég er búin að skrifa margar. Og er ekki ennþá búin, núna er ein eftir í viðbót...nei bíddu, tvær. Þar á meðal 20 blaðsíðna doðrantur (elska þetta orð) sem ég þarf að skrifa á næstu vikud, endalaust vei. Hef víst verið að vinna undir þeim merkjum að "Ekkert gerist nema að maður sæki um" en ég held að það sé farið að hafa áhrif á geðheilsuna. Og síðan er ritgerð fyrir morgundaginn.

En það er ljós við enda gangsins, langa langa langa gangsins. 31 mars er ég aftur að fara til London, alveg óvænt! Kemur ekki í ljós að samtökin sem ég er að vonast til að vinna fyrir í sumar er með sýningu í lok mánaðarins, skrifa meira um það síðast. Verður svona microferð þar sem ég mun vonandi komast frá því að gista, we will sway indeed.

Lagið: Sexbomb - Tom Jones (smá trivia, vitið þið að ég á einhverstaðar heilan geisladisk sem inniheldur ekkert nema þetta lag, skrifað fjórtán sinnum)
Tilvitnunin: CJ: I'm back in America now; I have rights. I'm no longer belted down next to the passenger from hell... It was gruesome. If you'll look out the left side of the cabin you'll see the fjords. Then we got a history of the fjords. Then we got a quiz on the fjords. Do you have any idea how much I'd like to dress you up in lederhosen and drop-kick you into a fjord?

- The West Wing

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home