Allt í háalofti
Það er alveg ótrúlegt hvað mikið er hægt, eða á að vera hægt, að gera í einu. Allt á fullu hérna eins og vanalega en mér líður nokkuð vel þessa dagana. Ja, fyrir utan nokkuð sem heitir Historical Investigation sem kennarinn hefur mjög skiljanlega kallað Hysterical Investigation. Heil 20% af lokaeinkunn takk fyrir, ein ritgerð. Og auðvitað, þar sem ég er ekki skipulagðasta manneskjan í heiminum, skrifaði ég hana alveg á síðasta séns. Ég man þegar skilafrestur var talinn í dögum ekki mínútum. Sit hérna núna um miðja nótt og skrifa handritið að leikriti sem ég og nokkrir aðrir nemendur erum að fara setja á svið eftir nokkrar vikur. Hlakka mjög til þess að fara vinna að þessu, þarf eitthvað annað heldur en bækur.
Valentínusarveikin er fyrirferðamikil í skólanum þessa dagana. Erum með leynivalentínusa, nema ég því að ég náði ekki að redda mér miða (mætti ekki í hádegismatinn þar sem þeir voru gefnir). En haldiði ekki að ég hafi vaknað einn morgunin og það fyrsta sem ég sá var rós, súkkulaðimoli og kort sem á stóð "You are beautiful when you sleep. Sorry for staring." Eins væmið og mögulega er en bjargaði alveg deginum mínum. Er samt ekki alveg að fíla mig í þessari væmni, kann barasta ekki svoleiðis.
Þó svo að seint sé, og að ég er búin að óska henni til hamingju oft, þá vil ég opinbera óska Hörpu til hamingju með nýju íbúðina sína og ekki sé minnst á nýju kettlingana, Drottningu og Chinchin. Mér varð þess heiðurs aðnjótandi að verða andlegur ráðgjafi þeirra (guðmóðir hljómar ekki rétt í mínum eyrum) og mun taka það hlutverk mjög alvarlega. Einnig er ég búin að bjóða mér í "velkomin heim boð" til Hörpu þegar ég kem heim, og ekkert minna.
Ah, sá síðan á glænýju síðunni hennar Erlu sem sést hérna til hægri á síðunni minni að hún er ekki par ánægð með að það sé verið að fara skipta um Bond og er ég henni hjartanlega sammála henni. Pierce Brosnan er hreinlege fullkomin Bond og ef að þeir ráða einhvern eins og Jude Law í staðinn þá mun ég hætta að fara á Bondmyndir. Það er ekki hægt að gera Bondmynd um tvítugan Bond, ég vil það ekki. Formúlan hefur virkað of lengi til að fara breyta einhverju. Ó og ein staðhæfing í viðbót: Ef að Britney Spears kemur nálægt Bondmynd þá mun ég ekki einungis sleppa því að sjá hana heldur persónulega kaupa eintak af myndinni og brenna það.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home