mánudagur, október 02, 2006

"Það eru allir alltaf að hlaupa."

Þessi frábæra setning hjá mömmu (reyndar um The Da Vinci Code, mjög rétt might I add) er mjög góð lýsing á lífinu akkúrat þessa stundina: ég er alltaf að hlaupa. Fara með Kjartan í skólann, hlaupa í skólann, reyna að lesa, internetast, fara í tíma, prenta út meiri heima vinnu, reyna að troða inn öðrum hlutum sem ég þarf að gera inn á milli t.d. fara í bankann, hlaupa aftur í skólann, ná í Kjartan, laga til, einhverstaðar þarna inni reyni ég að borða, spila spil/fótbolta með Kjartan, hleyp aftur í skólann til að reyna að lesa meira og reyna að eiga mér líf.

En þetta gengur bara ágætlega verð ég að segja. Það ótrúlega er að því uppteknari sem ég er því nauðsynlegra er það að skipuleggja tímann sinn þannig að allt komist fyrir. En verð að viðurkenna að ég er uppgefin á kvöldin, fer oftast upp í um 10 (svona þrem tímum fyrr en ég gerði í fyrra) og virðist vera að koma meiru í verk. Golden times er þegar dagurinn er búin og mér tekst að lesa smá (I am Legend eftir Richard Matheson er snilldin ein, ekki lesa hana Harpa hún er um vampírur) eða glápa á kassan (bíómyndirnar mínar eru aftur komnar til mín, þar sem þar eiga að vera).

Núna fer reyndar að koma að því að ég verði að ákveða hvað í ósköpunum ég ætla að skrifa lokaritgerðina mína um, djöfull...hef voða voða litla hugmynd. Verð að fara setjast niður og ákveða þetta. Tölum ekki meira um það.

Tókst reyndar í gær að læra, fara í bíó og spila póker um kvöldið. Varð ÖNNUR takk fyrir og fór heim með níu pund í vasanum. Reyndar var það ekki út af pókersnilldinni minni heldur voru allir að spila frekar illa, en ó vell...það er prinsippið sem gildir í þessum málum. Játning: Fór að sjá The Devil Wears Prada algjörlega og einungis út af gyðjunni Meryl Streep, og hún stóð svo aldeilis fyrir sínu, eins og hún gerir alltaf. Vandræðin voru að söguþráðurinn og skilaboðin sem myndin gaf var hryllingur. Ef að þú villt standa þig vel í starfi verður þú að slíta samböndin við alla í þínu lífi og ef að þú sérð ekki kærastann þinn á hverjum degi ert þú lús og átt hann ekki skilið. Plús að það er ekki þess virði að vinna mikið í eitt ár til þess að fá draumastarfið þitt. Bara svona til að byrja með....gah, vil ekki einu sinni hugsa um það. Versta var að þegar ég stóð fyrir utan þá heyrði ég hóp af stelpum tala saman um hversu frábært það væri að vera aðstoðarmanneskjur í tískuheiminum þrátt fyrir að þær eru í 0 stærðum og borða aldrei, það er alveg þess virði....hvað? Hvers konar heimi lifum við eiginlega í, er algerlega á móti þessum stöðluðu ímyndum um fegurð.

Allaveganna, hlaupin halda áfram, er að fara í tíma.

Myndin: The Devil Wears Prada, Meryl Streep er goð!
Bókin: I am Legend - Richard Matheson
Tímaritið: Empire

The Top 10 Film Stealers

7 Kevin Kline, A Fish Called Wanda (1988)

"Random comic voodoo - two Pythons upstaged in the same movie by a Shakespearean-trained, proper capitals 'Actor'. In a giant, armpit-sniffing comedy deathstrike, obnoxious nut-job Otto proved such a worrying fit for Kline that, come the fish-eating scene, he offered to do it for real. Sensibly, the makers realised that the only way to stop the out-sized performance was to flatten it with a steamroller." - Emprie Magazine, plús hann vann Óskar.

Tilvitnunin:

Miranda Priestly: The details of your incompetence do not interest me.

-------------

Miranda Priestly: I don't understand why it's so difficult to confirm an appointment.
Emily: I know, I'm so sorry, Miranda. I actually did confirm...
Miranda Priestly: The details of your incompetance do not interest me. Tell Simone I'm not going to prove that girl she sent me for the Brazilian layout. I asked for clean, athletic, smiling; she sent me dirty, tired and paunchy. And RSVP yes to Michael Kors' party, I want the driver to drop me off at 9.30 and pick me up at 9.45 sharp. Then call Natalie at Gloria's Foods and tell her no, for the 40th time, no, I don't want dacquoise, I want tortes filled with warm rhubarb compote. Then call my ex-husband and remind him that the parent/teacher conference at Dalton is tonight. Then call my husband. Ask him to please meet me for dinner at that place I went to with Masima. Also, tell Richard I saw all the pictures that he sent for that feature on the female paratroopers and they're all so deeply unattractive. Is it impossible to find a lovely, slender, female paratrooper? Am I reaching for the stars here? Not really. Also I need to see all the things that Nigel has pulled for Gwyneth's second cover. [seeing Andy]
Miranda Priestly: Who is that?

------------------------

Miranda Priestly: Find me that piece of paper I had in my hand yesterday morning.

------------------------

Miranda Priestly: Yes, move at a glacial pace. You know how that thrills me.

- Meryl Streep, The Devil Wears Prada

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home