Mikilmennskubrjálæði Íslendinga
http://environment.guardian.co.uk/conservation/story/0,,1925584,00.html
Þetta er sms sem ég fékk frá James (er í Hong Kong akkúrat núna):
"Quote from the guardian - yesterday, 280000 icelanders were reminded who they are - pariahs of the big green world community of animal lovers...the australian government called iceland's decision 'a disgrace'...Icelanders were condembed as 'irresponsible', 'unacceptable' and 'insane'. Ha Ha! Damn right to you bloodhtirsty fuckers. I think that's the only time I've ever seen Icland in the news. Apart from bjork."
Náttúrulega er mikið af þessu grín en hann hefur mikið til málanna að leggja, hvað er þetta með Ísland? Var líka að lesa í Guardian af Baugsmálinu og hvernig allir í viðskiptaheiminum á Íslandi er ein stór klíka. Er þetta myndin sem við viljum gefa heiminum? Er eiginlega bara fyndið að við þykjumst vera einhverskonar stórveldi, talandi um minnimáttarkennd. Og það kaldhæðnislega við þetta allt saman er að það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég las smsið var NEI! VIÐ ERUM 300.000 ÞÚSUND! Verð nú samt að segja að ég sé algerlega á móti hvalveiðunum og finnst það skömm hvernig Íslendingar einangra sig frá alþjóðamálum, og það eina sem skiptir máli er hvað við getum grætt, ekki hvernig við getum hjálpað.
Svona til að gefa dæmi þá er ég núna í kúrs sem fjallar um hælisleitendur og flóttamenn. Í þessari viku langaði mig til að vita hvað Ísland væri að gera í þessum málum:
http://www.redcross.is/starfid_heima/haelisleitendur_og_flottamenn/haelisleitendur_a_islandi/
Þetta er algjör skandall, og ættu Íslendingar að gera meira í þessum málum og gera það auðveldara fyrir fólk að byrja nýtt líf í öruggu landi eftir að hafa lent í ógurlegum hremmingum í sínum heimalöndum t.d. pyntingum, nauðgunum og ofsóknum.
Ef að Ísland og Íslendingar ætla að láta ljós sitt skína í þessum heimi þá myndi ég halda að það væri betra að gera það á jákvæðan hátt t.d. með þróunaraðstoð og gera það auðveldara fyrir hælisleitendur að koma til landsins í staðinn fyrir að gera það á neikvæðan hátt með hvalveiðum og stuðningnum sem við veittum við stríðið í Írak.
Úff...er ekki eins reið núna, gott að koma þessu frá sér....en það er ekki nóg að tala um hlutina, það verður að gera eitthvað í þeim!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home