
Harpa
Í dag vil ég fagna og syrgja. Í dag á Harpa Flóventsdóttir afmæli. Hún er 24 ára. Hún er einu ári eldri. Þrátt fyrir þrætingar um háan aldur þá er það ekki svo einfalt Harpa mín. Mannkynið allt ætti að virða 1 mínútu þögn og hugsa um allt það sem þessi stórkostlegi einstaklingur hefur gefið heiminum, sem er meira en hægt er að segja frá í þessari litlu tölu. Má þess annars geta að hún á sama afmælisdag og Henry VI, sem gerir hana konungsborna í mínum augum. Plús að hinn mikli tónsnillingur Ira Gershwin var líka fæddur á þessum degi. Bítlarnir byrjuðu einnig að taka upp Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band á Abbey Road 6. desember 1966. Það gerir hana að tónsnillingi, sem hún er með réttu. Ég gæti haldið svona áfram endalaust, hún er það frábær. Allaveganna ég enda með þessum orðum: Til hamingju með afmælið Harpa! Þú ættir ekki að hugsa um að þú sért einu ári eldri heldur þú hafir heiðrað mannkynið og alla sem þú þekkir með heilum 24 árum.
Tilvitnunin: "Tilviljun, I think not." "Well done Penelope." "Af hverju ekki?"
Myndin: Of margar, The Man in the Iron Mask, Much Ado About Nothing, Sense and Sensibility, Lolita
Bókin: Story of the Eye, hehe
Lagid: Er akkúrat núna að hlusta á The Tourist með Radiohead, held að það hæfi vel, plús Sexbomb með Tom Jones, "across a crowded room", Be Prepared með Jeremy Irons
Manneskjan: Harpa, augljóslega!

3 Comments:
Takk Sigga fyrir falleg orð ... Stundum finnst manni 'takk' vera of lítið orð fyrir meininguna sem maður vill setja í það.. Þetta er ein af þeim stundum.
Þú ert gull af manni..
www.blog.central.is/umfg1983
Þetta er blogg hjá okkur úr árgangi 83 í Grindavík. :)
Endilega kondu og kíktu.. Kvittaðu og fáðu aðgang. :)
Til hamingju með daginn í gær:*
kv,
erna
Skrifa ummæli
<< Home