þriðjudagur, október 31, 2006

Miðar

Ég á miða, þrjá miða. Þrjá stórkostlega, yndislega, stupendous miða. Miða á hvað ég heyri ykkur spurja öll í kór. Svona til að byrja með miða til london (ég tel þá sem tvo því að ég verð víst að fara fram og til baka, djöfulsins rugl er það). Og það eru lestarmiðar, hef aldrei ferðast svona lengi í lest svona fyrir utan þessa mjög súrrealísku 12 tíma á leið til Beijing í Kína um árið. En það eru ekkert sérstakir miðar per se, alltaf gaman til London en þetta er sérstakt tækifæri. Sem leiðir umræðuna af þriðju miðunum. Jah, nú er spenningurinn örugglega orðinn alltof mikill.....................................þannig að ég ætla að láta ykkur bíða aðeins lengur............................Ég er búin að fá miða í sæti H8 (er mjög sátt með þessa samansetningu) á A Moon For the Misbegotten í the Old Vic þar sem Kevin "vinur minn" Spacey fer með aðalhlutverkið! Ó já, ég og hann erum mjög náin eftir nokkra hittinga yfir síðustu ár, sem verður ekki endurtekin á þessu ári.....það er saga fyrir annað blogg undir titlinum "You were spectacular." - Silence. Anyhoo, það sem er merkilega við þetta er ekkert endilega Spacey sjálfur heldur leikritið. Af öllum þeim fjöldamörgum leikritum sem ég hef lesið yfir árin þá er þetta á toppnum, svoleiðis er það bara. Eina leikritið sem ég hef lesið og farið að hágráta, inn á klósetti á Leifstöð (var í vinnunni fyrir nokkrum sumrum). Það var bara ekkert annað hægt. Ef að ég gæti leikið væri the golden goose að leika Josie, svo rétt á eftir henni Martha í Who's Afraid of Virginia Woolf? Ó minn bejesus, ég get hreinlega ekki beðið. 18. nóvember er bara alltof langt í burtu. Ah, og by the way Colm Meaney er í aukahlutverki, svona aukabónus fyrir Star Trek lúser eins og mig.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home