sunnudagur, nóvember 05, 2006

Verkefnaskil, pössun og Laura Linney

Er búin að vera á kafi í verkefnaskilum síðustu vikurnar, og er enn ekki búin. Tvö verkefni núna á þriðjudaginn og síðan þarf ég að skila inn tillögu að LOKARITGERÐINNI í næstu viku. Garg og urg (skrifaði Gark, flott). Anyhoo, búin að vera brjáluð helgi. Gestir hjá fjölskyldunni sem endaði með því að á föstudaginn var ég að passa þrjú börn, fór síðan aftur að passa um kvöldið, og líka í gær. En þar á milli tókst mér að fara í smá sjálfboðavinnu (er að vinna í bókabúð tvo tíma á viku), læra, og komast loksins yfir eintak af The Hurricane. Veit ekki af hverju en er búin langa til að horfa á hana í marga mánuði, og Vogue Video (Myndsel Edinborgar) átti hana ekki! Var nú ekki sátt með það...fór sem sagt alla leiðinna niður í bæ og keypti hana, plús hina hörmulegu Hello Again á 1 pund, en er ein af fyrstu myndunum sem ég sá Gabriel Byrne í, nostalgia galore...læknirinn Kevin Scanlon, ó já. Annars er ég að vinna að verkefni um hælisleitendur (skrifa um það í smáatriðum seinna, vá er ennþá reið) og um að minnka fátækt í Nepal.

Það gengur bara nokkuð vel að láta þetta allt passa saman; vinnuna, lífið og skólann. En ég verð að viðurkenna að á kvöldin er ég algjörlega uppgefin, oftast komin UPP Í klukkan 10, hvað er málið með það? Hlakka alveg ofboðslega mikið til að koma heim um jólin, er búin að vera alltof lítið heima á þessu ári. Kem heim á landið fagra 19. des og verð eitthvað fram yfir áramót! Gahaha, gleði og kátína yfir því.

Ah, og vildi bara láta ykkur vita af smá öfund, og örlítils haturs sem ég ber til Lauru Linney. Bara svona til að nefna það þá hefur hún leikið með þessum öndvegis mönnum: Gabriel Byrne (þrisvar, tvisvar sem hjón), Liam Neeson, Alan Rickman, Richard Gere (tvisvar), Tom Wilkinson, Sean Penn, Kevin Spacey, Anthony LaPaglia og verið í Frasier, ....og listinn heldur áfram.....úff, held að ég höndli ekki svona óréttlæti.....

....var að horfa á P.S. með henni í þessri viku og skildi ekki af hverju hún minnti mig svo á einhvern sem ég þekkti, hugsaði um þetta lengi lengi og allt í einu small þetta. Konan sem ég vinn með í bókabúiðinni lítur ALVEG eins út og hún, gætu verið tvíburar, djöfull brá mér þegar ég fattaði það, heimurinn er alltof lítill....

Bókin: Tropic of Cancer - Henry Miller
Þátturinn: X-files (talandi um nostalgíu)
Manneskjan: Pabbi, til hamingju með afmælið!
Tilvitnuninn:

Beatrice: I wonder that you will still be talking, Signior Benedick: nobody marks you.
Benedick: What, my dear Lady Disdain! are you yet living?
Beatrice: Is it possible disdain should die while she hath such meet food to feed it as Signior Benedick? Courtesy itself must convert to disdain, if you come in her presence.
Benedick: Then is courtesy a turncoat. But it is certain I am loved of all ladies, only you excepted: and I would I could find in my heart that I had not a hard heart; for, truly, I love none.
Beatrice: A dear happiness to women: they would else have been troubled with a pernicious suitor. I thank God and my cold blood, I am of your humour for that: I had rather hear my dog bark at a crow than a man swear he loves me.
Benedick: God keep your ladyship still in that mind! so some gentleman or other shall 'scape a predestinate scratched face.
Beatrice: Scratching could not make it worse, an 'twere such a face as yours were.
Benedick: Well, you are a rare parrot-teacher.
Beatrice: A bird of my tongue is better than a beast of yours.
Benedick: I would my horse had the speed of your tongue, and so good a continuer. But keep your way, i' God's name; I have done.
Beatrice: You always end with a jade's trick: I know you of old. (Ha!? Harpa, við verðum einhvern tímann að komast að því hvað í anskotanum þessi setning þýðir, miðað við að við getum þulið alla myndina á ég bágt með að trúa því að við getum ekki leyst þetta!)

Lagið: Darker With the Day - Nick Cave & The Bad Seeds

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ bara að láta vita að ég er til enþá og kýkji oft inn á síðuna þína.

kveðja,
frú skandal
http://fernus.blog.is

10:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, það er náttúrulega það sem við höfum sagt...það er einhver forsaga greinilega, þótt þetta sé eiginlega það eina sem bendi til þess!... ætla skella spólunni í tækið, taka smá Branagh á þetta :o)

2:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Verið að reyna að safna saman árgangnum. Vonandi virkar þetta og vonandi sjá sem flestir þetta úr árgangnum. Svona í tilefni 10ára fermingaafmælisins sem við förum að eiga.

9:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

kíktu á slóðina hún er blog.central.is/umfg1983

9:22 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home