
Bob Dylan singing, football kicking, and St. Patrick's drinking extravaganza!
Ég er uppgefin við það einfaldlega að sitja hér við tölvuna og pikka inn, í dag, í fyrsta skiptið síðan ég hreinlega veit ekki hvenær spilaði ég heilan klukkutíma af fótbolta. Og þvílík endalaus gleði sem það var, hverjum er ekki skítsama up rok og vesen, fótbolti var spilaður. Það sem er líka ennþá betra, okkar lið vann 20-19 eftir að hafa verið undir allan leikinn og undirrituð tókst að pota síðasta markinu inn. Ó ég á svo eftir að sjá eftir því að hafa hlupið svona mikið á morgun, finn það á mér. Tók líka nokkrar dýfur og vel valdar rúllur á blautu grasinu. Anyhoo, ég er að fara fram úr mér....um nokkra daga.
Þetta byrjaði allt á fimmtudaginn með aðalfundi skandinavíufélagsins í skólanum þar sem mér tókst að bjóða mig fram við að vera gjaldkeri félagsins á næsta ári. Já, ég gjaldkeri, að vinna með og hafa ábyrgð á peningum. Ó þetta fólk veit ekki hvað það er að koma sér í, reyndar ekki ég heldur. Það endaði á pöbbnum með nokkrum bjórum.
Föstudagurinn: Partí hjá vinkonu minni. Bjór var drukkinn og endað með því að syngja Dylan lög til 5 þegar ég var ein af þeim síðustu að hypja mig út. Röddin algjörlega farið. Ég segji nú bara, hafið þið reynt að syngja All Along the Watchtower eða A Hard Rain's A-Gonna Fall hástöfum, eða að syngja the great Dylan í meira heldur en tvo tíma stöðugt, ég vill bara benda á þetta.
Laugardagurinn: St. Patrick's day. Var kannski ekki í minni bestu stemmingu vegna takmarkaðs svefns en fór samt í bókabúðina góðu og eyddu tveim tímum í að verðmerkja bækur. Um kvöldið var haldið í póker þar sem ég tapaði frekar illa, reyndar alveg mjög illa. Hef sjaldan séð eins léleg spil á æfi minni, nei bíddu aðeins....síðast þegar ég spilaði líka var ég með alveg eins spil. Tókst síðan að koma við í partíi á leiðinni heim til að segja hæ, en var þá alveg alveg alveg búin á því og heim var haldið.
Var komin á fætur kl. 10 í morgun, spilaði fótbolta og fór síðan í DOUBLE BILL þar sem voru sýndar Brief Encounter og Casablanca. Er núna á bókasafninu í smá pásu og síðan liggur leiðinn í leikhús til að sjá hina alræmdu Penny Dreadfuls í fyrsta skiptið...svona leikskyssur með keim af Viktoríutímabilinu, hef heyrt að þeir séu frábærir. Síðan verður vonandi haldið heim þar sem ég mun falla í rúmmið án vott af reysn og mun rotast fram á morgun eins og barður selur (og örugglega alveg eins aðlaðandi).
Myndin: Brief Encounter/Casablanca (Bogart er töffari dauðans, og reyndar dauður töffari líka)
Tónlistin: Allur Bob Dylan í heild sinni, sungið af mér, illa
Bókin: Louisa May - Sexton (verð að fara horfa á Little Women aftur, mmmmm)
Íþróttataktar: Tókst að skjóta framhjá opnu marki 3 í dag, það þarf spes talent til að vera ég

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home