Gifting samkynhneigðra
Ég er í sjokki. Á hreinlega ekki til eitt aukatekið orð. Held að það væri best að byrja á byrjuninni. Undanfarið hefur gifting samkynheigðra verið mikið í fréttunum, sérstaklega í Bandaríkjunum. Dómstóll í San Fransisco dæmdi það löglegt að pör af sama kyni mættu giftast. Þvílík gleði sem braust út hjá mér! Loksins var eitthvað að gerast í þessum málum, sem by the way er mannréttindamál og ekkert annað. Og viti menn þúsundir borgara í San Fransisco þustu niður í bæ til að láta gifta sig, þið hafði vonandi séð myndirnar af röðunum á mbl.is Þetta var stórt skref í mannréttindasögu Bandaríkjana. En nei nei auðvitað fór allt til fjandans. Öfgahægrifólk gjörsamlega tapaði sér og allt í einu skaut ljóta draugunum sem heitir fordómar upp sínum gamla og úrelta haus. Ekki hjálpaði það að Terminatorinn hann Arnold er ríkisstjóri í Kaliforníu þar sem þetta er að gerast og líka auðvitað að George Bush sé forseti þessa lands. Eins fljótt og þeir fengu míkrafón fyrir framan sig þá örguðu þeir um að þetta væri gegn öllum lögum sem til voru í Bandaríkjunum og að þetta væri ólöglegt. Ég skil ekki hvernig svona fólk hugsar. Þetta er svo mikil þröngsýni að það er ekki hægt annað en að setja á sig fordómaskóna í smá stund og fordæma þá, ég veit að maður á ekki að gera svoleiðis á móti en það er bara svo fjandi erfitt þegar svona menn eiga í hlut.
En jæja. Ég ákvað að kanna þetta aðeins á netinu og athuga hvað fólk héldi um þetta. Fór á Google og skrifaði gay marriage. Fyrsta síðan sem kom upp var þessi hér Góðir hálsar má ég kynna American Family Association - Promoting Traditional Family Values. Ég hélt að ég yrði ekki eldir. Já ég bjó þarna í heilt ár en ég kynntist aldrei svona. Ekki einungis eru þau með pistla skrifaða af manni sem hefur "afhommast" sem er að tala á móti giftingu fólkst af sama kyni heldur eru þau t.d. með lista yfir "hættulegar bækur" þar sem bækur eins og Chronicle of a Death fortold Gabriel Garcia Marquez er og Beloved eftir Toni Morrison. Bæði eru þau Nóbelsverðlauna hafar og ótrúlegir righöfundar. Bíddu augnablik! Erum við allt í einu komin aftur til McCarthy tímabilsins? Hvað er næst? Bókabrennur og kommúnistaofsóknir? Ég er enn í sjokki.... þvílík og endemis þröngsýni og mér líkar ekki við að nota þetta orð: heimska.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home