sunnudagur, febrúar 15, 2004

Rehabus

Þetta var það fáránlegasta sem ég hef séð lengi. Pæliði aðeins í nafninu á þessum dálki: Rehabus. Jamm, ég hef séð Meðferðarútu (nei þetta er ekki stafsetningarvilla, það á bara að vera eitt r). Sat og var að bíða eftir að hitta Klöru og Tomma (já, þau komu aftur) og sá þá rútu sem þetta stóð á: Rehab Society of Hong Kong. Það var aldrei að verið er að auglýsa svona hluti og á svona slæman hátt: Rehabus. Gat ekki gert annað heldur en hlegið.

Um, já, Klara og Tommi mættu aftur á Hong Kong svæðið í gær eftir tvær vikur í Indlandi, rosalega öfunda ég þau. Og getiði hvað: Ég er búin að redda mér afnotum af digital myndavél þangað til ég kem heim. Þau báðu mig um að koma með myndavél sem þau keyptu heim handa þeim. Vegna tollana "verð" ég að nota hana. Snilld í poka takk fyrir. Þannig að núna get ég varið að reyna að taka aðeins fleiri myndir, er svo hryllilega löt með það.

En er jafn mikið að gera og vanalega. Það er alveg ótrúlegt en samt farin að sjá hlutina í aðeins breyttu ljósi, er að reyna að skemmta mér eins vel og ég get. Sem ég og gerði í gær. Það var strandarpartí í gærkvöldi og eins og alltaf var hörku gaman. Hálfur skólinn skellti sér á ströndina fyrir neðan skólann. Þar var drukkinn bjór í rólegheitunum, hlustað á tónlist og spjallað fram á nótt. Það er eitt það besta við þennan skóla: Maður getur talað um allt milli himins og jarðar. Talaði um jass, ETA, pólitík, trúmál, kvikmyndir og fjölmargt annað.

ps. Á enn bágt með að sætta mig við það að Jónsi sé að fara syngja fyrir Íslands hönd á Júróvision, er ekki sátt. Var það ekki nóg að láta Birgittu fara?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home