þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Hinn heilagi Valentínus og Taggart

Gleymdi alveg að segja ykkur að ég komst að því á föstudaginn hver leynivalentínusinn minn var: Daníel frá Venesúela sem býr í sömu blokk og ég. Þó að þetta sé alltof væmin og amerísk hefð fyrir minn smekk þá verð ég að viðurkenna að það var ekkert leiðinlegt að fá súkkulaði og rósir.

Úff, núna eru gerfi(mock) prófin að byrja. Heil vika þar sem ekkert er gert annað en að taka próf til að undirbúa sig fyrir LOKAPRÓFIN sem eru í maí. Gjörsamlega nenni ekki að fara í þessi próf en jæja ef ég lít á björtu hliðarnar þá er allaveganna ekki skóli á meðan.

Allt gengur sinn vanagang hérna nema ég er búin að færa vinnuaðstöðuna mína frá skrifborðinu og upp í rúm takk fyrir.
Búin að sitja alltof mikið á harða stólnum, rassinn einfaldlega þolir ekki meira. Reyndar ekki nógu gott því að það er svo auðvelt og gott að sofa í rúmminu. Æji, var síðan einmitt að hlusta á Taggart lagið akkúrat núna (þið megið bara hundsa það að ég er með það á tölvunni og það í tveimur útgáfum). Langar svo að horfa á þættina sem ég hef misst af. Það er eins gott að þeir verði ekki eins hrikalegir og í fyrra. Harpa, ég er enn að jafna mig.... þetta var svona eins og Assumpta nema bara 42 sinnum verra.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home