fimmtudagur, apríl 12, 2007


Heimsóknir, hrollvekjur og harðlífi.

Mikið hef ég verið að bauka síðustu vikurnar, meira heldur en vanalega (bauka er eitt af mínum nýju uppáhaldsorðum, og reyndar líka hnota, skemmtilegt). Svona til að byrja með má ég til með að nefna frábæra páksaferð okkar mæðgna! Mamma og Systa gerður sig svo frábærar að skella sér hreinlega til Edinborgar yfir páskahelgina. Yndislegt veður, góður matur og enn betri félasskapur í þrjá daga, veður ekki betra. Hápunkturinn verður nú samt að vera kvöldverðurinn á japanska/kínverska staðnum þar sem við borðuðum hreinlega á okkur gat. Sushi í forrétt og kínverskur í annan forrétt og aðalrétt. Má til að nefna það að þegar kínverski forrétturinn var lagður á borð voru miklar málaleggingar um hvort að þetta væri ekki bara aðalrétturinn, var svo svakalega mikið. Nei nei, eftir stórmáltíð komu síðan þrír kúfullir diskar af allskonar góðgæti. Hvað ætli við höfum verið lengi inn á þessum blessaða stað? Tveir tímar, minimum. Auðvitað var síðan verslað. Ég nefni voða sjaldan föt eða annan slíkan varning á þessu litla bloggi en ég verð bara að nefna megajakkan sem mamma var svo yndislega að kaupa fyrir mig: Blár frakki! Litla snilldin sem það var, varla búin að fara úr honum. Hérna er síðan aðalatriðið: Hann var á 70% afslætti og kostaði 18 pund! Þannig að við vorum bara að spara með því að kaupa hann, hehe. Löbbuðum síðan út um alla alla alla Edinborg, tókum alveg RISAhring á laugardeginum, mamma bara í hörkuformi þessa dagana. Skelltum okkur líka á litla snilld sem heitir Farmer's Market þar sem bændur selja afurðir sínar s.s. jógúrt, safa, kjöt og fisk af öllum gerðurm. Mér og Systu tókst meira að segja að laumast á pöbbinn að næturlagi á meðan mamma slappaði af heima, en auðvitað stóðum við okkur eins og sannar hetjur í öldrykkju með reglulegum stoppum yfir daginn. Frábær ferð í alla staði og hvet ég alla til að taka þær sér til fyrirmyndar og fara að koma sér af stað, styttist í að ég hreinlega fari að útskrifast og hverfi úr hinni fögru Edinborg. Takk fyrir að koma stelpur, björguðu alveg páskunum.

En ég fór sjálf í smá leiðangur helgina áður en þær stöllur komu í heimsókn: til London. Þar tókst mér alveg sjálfri að leggja byrjunardrög að Kambódíuferð! Já, ekkert minna heldur en það. Hitti stofnanda leiklistarsamtaka sem stafar þar í landi og hann bauð mér að koma í sumar, í heilann mánuð takk fyrir. Þetta er allt að gerast og mun ég rita um það síðar.

Einhver hefur væntanlega spurt sig hvað í andskotanum er að gerast á myndinni sem fylgir þessu bloggi. Já, maður spyr sig. Ég ákvað í algjöru sakleisi mínu að skella mér á Inland Empire. Ó mitt heilaga litla hjarta. Ég hef aldrei aldrei aldrei verið svona hrædd í bíó á minni æfi, og þá er ég að segja mikið. Já, ég tel með The Village og Blair Witch Project Harpa mín, jafnvel legg þær saman. Hún byrjaði svo sem allt í lagi, svolítið súrrealísk eins og David Lynch er einum lagið. Var svolítið stressuð en fyrsti klukkutíminn var bara fínn. Síðan komu hinir tveir! Já tveir klukkutímar í viðbót. Meðal atriðana voru konur hlaupandi um með skrúfjárn, fólk að tala Austur Evrópskt tungumál án þýðinga, risastórar kanínur í jakkafötum að spjalla saman án þess að hreifa munnin, dósahlátur, endalausar þagnir, tónlist sem virtist vera að mestu byggð á hljóðum líkt og að draga neglurnar eftir skólatöflu, nærmyndir alveg upp í nasir....ég get haldið áfram að telja. Já, var ég búin að nefna að ég sat á öðrum bekk? Var í öðrum heimi þegar ég labbaði út og var svo skelfandi hrædd að ég hreinlega tók leigubíl heim. Þetta var mjög fallegt Edinborgarkvöld og leigubílstjórinn spurði mig afhverju ég hefði ekki labbað heim, hvað átti ég að segja: I am so bonechillingly afraid of the big rabbits in suits coming to get me. Held ekki, svaraði eins og auli að ég væri þreytt. Þreytt á sálinni hefði verið nær sannleikanum. Og ekki læri ég, vitiði hvaða mynd ég fór á næst: Sunshine. Um fólk sem fer út í geim og fer að missa vitið. Flott Sigríður.

Jæja, ætli það sé ekki tími til kominn að fara haska sér aftur að harðlífinu i.e. 4000 orða ritgerð sem á að skilast í næstu viku. Málefnið: vændiskonur.

Tónlistin: Everything In Its Right Place - Radiohead

Tilvitnunin:

[Mr. Grey explains to Lee why he's firing her]

E. Edward Grey: It's your behavior.

Lee: What about my behavior?

E. Edward Grey: It's very bad.

- Secretary

Bíómyndin: Inland Empire + Sunshine = áfallahjálp

Greinin: Understanding the Social and Cultural Contexts of Female Sex Workers in Karnataka, India: Implications for Prevention of HIV Infection eftir Blanchard et al.

Manneskjurnar: Systa og Mamma, augljóslega. Verð reyndar líka að nefna að Kurt Vonnegut var að deyja þannig að hann verður að fá að fljóta með.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

úfff.. everything in its right place... já maður

3:02 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home