Back in the habit
Eins og Sister Act II titillinn gefur til kynna þá er þetta allt saman að koma. Í síðustu viku var þetta svona meira að koma sér fyrir aftur frekar en að henda sér í lærdóm, þó að ég verði að skella mér í það núna. Er að reyna að uppfæra dagskránna frá því á síðustu önn með því að lesa meira utan skóla, kláraði Waiting: True Confessions of a Waitress eftir Debru Ginsberg sem er einstaklega skemmtileg lesning mæli með henni! Auðvitað var mjög fljótlega hoppað inn í bókabúið og keypt tvær bækur - 'Remains of the Day' eftir Kazuo Ishiguro og 'The lady in the lake' eftir Raymond Chandler (film noir leynilögreglu myndir eru svo frábærar). Og endilega lesiði Remains of the Day (Fanney hún er til á bókasafninu í Grindavík). Hjálp, það er ekki oft sem ég græt yfir bókum en ég sver ég var með tárin í augunum allan tímann, hún er svo svakalega góð að þið bara trúið því ekki. By the way: Systa hvernig gengur með 'Five people you meet in heaven'?
Annars er tíminn algjörlega búin að fljúga burtu með vinum: í matsalnum, á kaffihúsum og í íbúðum. Jah, reyndar var það best á þriðjudaginn þegar ég fór á pöbbakvöld með alþjóðlegu nemendunum. Alltaf hisst einu sinni í viku, spjallað og drukkið bjór. Alveg svakalega gaman. Eyddi reyndar mest öllum tímanum í að tala við Ameríska stelpu sem var nýkomin til Edinborgar og ætlaði að eyða önninni hérna. Kom í ljós að hún var frá Minnesota (ríkinu við hliðina á Wisconsin) og við áttum margt sameiginlegt. Skammaðist mín reyndar smá því að þetta pöbbakvöld er búið að vera á dagskrá síðan í haust en ég hef aldrei farið fyrr en í síðustu viku, ég er alltaf svo viðutan.
Er líka búin að skrá mig í kvikmyndafélagið, loksins. Fer alltaf með Kishani, vinkona frá London, þar sem hún er alveg jafnmikið bíónörd og ég. Bara svona til að monta mig hérna er listinn yfir bíómyndirnar sem verða sýndar þessa önn - SNILLD! Borga 10 pund og get séð allt þetta. Mjög sniðugt.
Var að klára að horfa á Edinborgarliðið vinna í ensku útgáfunni af Gettu Betur (bara fyrir háskóla), við unnum takk fyrir. Hef samt lúmskan grun um að einhver af skólunum í Oxford eða Cambridge muni taka þetta. Og já: ÉG MISSTI AF GOLDEN GLOBE! Hrikalega er ég svekkt. Hélt að þetta myndi allt verða betra eftir að ég fór frá HK en nei þeir sýna bara svona hátíðir á kapalstöðvunum. Missti af Clive Owen og Robin Williams taka við verðlaunum. Svindl.
Tónninn: Jimi Hendrix - Red House

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home