fimmtudagur, janúar 20, 2005

%^*&(^(&$($% brunabjalla....

...ó hin endalausa gleði sem brunabjallan boðar. Klukkan 4 í nótt var ég undir sæng. Þá hringdi brunabjallan. Það er ekkert verra en að vakna, fara í föt og hanga næsta hálftíman úti í ískluda. Þetta er í þriðja skiptið á þessu ári sem þetta geriðst. Kom reyndar oft fyrir í HK en þar var allaveganna heitt úti, sem er mjög mikilvægt þegar maður er á náttfötunum...held að mörgum hafi verið skapi næst að kveikja hreinlega í bara svo að slökkviliðsmennirnir hefðu alvöru ástæðu fyrir að koma....

ps. er að fara hitta fyrrverandi skólafélaga í dag. Nokkuð gott. Eyddum nokkrum mín í að íhuga hvenær er móralsklega nógu seint til að fara á pöbbinn (svona þegar maður er ekki í fríi). Komumst að því að sex er ágætis tími, hehe.

Tónninn: Faithless - "Weapons of Mass Destruction"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home