miðvikudagur, maí 02, 2007


Derrick!

Smá innskot, mjög nauðsynlegt innskot. Núna skuluð þið, ágætu lesendur, fara inn á þessa heimasíðu ekki seinna heldur en núna:




Vitiði hvað...þetta er ein fyndnasta, skemmtilegasta og frábærasta heimasíða sem ég hef nokkru sinni litið augum á. Þetta er skemmtistaður í alvörunni! Og vitið þið hvar hann er? Utrecht. Nils sagði mér frá þessum stað fyrir nokkru og ég er búin að vera eins og ég sé með orm í rassinum, spenningurinn er það mikill. Nota bene, sáuð þið opnunarmyndina af Derrick í Travolta-getuppinu? Vil ég beina athygli ykkar nú að lagalistanum. Á honum er að finna U2, Dolly Parton, MC Hammer, 2 Unlimited, Michael Jackson og Tom Jones. Hvers konar snillingum datt þetta í hug! Síðan er náttúrulega punkturinn yfir i-ið byrjunartónlistinn, ég var hreinlega búin að gleyma hversu mikil klassastef þetta er. Nostalgían alveg í botni. 8 ára, eina stöðin var RÚV og oftar en ekki sat ég með henni Hákoníu minni í næsta húsi og horfði á Derrick. Það verður ekki betra en þetta. Horst Tappert, þú ert hetja.

5 Comments:

Blogger Unknown said...

BLOGGAÐU FOR CRYING OUTLOUD!

2:14 f.h.  
Blogger Unknown said...

BLOGGAÐU FOR CRYING OUTLOUD!

2:14 f.h.  
Blogger Unknown said...

jæja Sigga.... tikk takk...

1:33 e.h.  
Blogger Unknown said...

þetter nottla bara ekki fyndið sko!......

11:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

æð á enninu á mér stækkar og stækkar.....!!! BLOGGA KONA!

8:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home