miðvikudagur, janúar 26, 2005

Robert Burns!

Ég fékk ósk frá manneskju sem mun verða ónefnd á þessari stundu þar sem óskað var eftir að það kæmi nú örugglega fram á þessu bloggi að ég væri að læra mannfræði en ekki kvikmyndafræði eins og virðist koma fram. Nei, ég er enn að læra mannfræði og það gengur vel. Tók mér meira að segja tak í gær og eyddi öllu eftirmiðdeginu á bókasafninu að lesa mér til um sértrúasöfnuði fyrir félagsfræði. Held að það sé bara málið: Halda því fram að ég sé löngu týnd frænka Búdda og stofna síðan sértrúasöfnuð. Fólk hefur gert skrýtnari hluti trúiði mér. Einstaklega áhugavert efni. He he, verð bara að passa mig. Er með miða á skrifborðinu mínu sem stendur: Finna sérttrúasöfnuð! Fólk gæti misskilið, er reyndar verkefni sem ég þarf að vinna að fyrir næstu viku, smá kynning í gangi.

Annars er það í fréttum að í gær var mér boðið í mat hjá Christian (vinur frá Þýskalandi). Ég og níu aðrir gæddum okkur á alvöru gæða haggis (skoskt slátur svona more or less). Kom nokkuð vel á óvart og var mjög gott verð ég að segja. Tilefnið var Robert Burns dagurinn. Fyrir þá sem ekki vita, og ekki veit ég mikið um hann, þá var hann skoskt skáld. Og af einhverjum ástæðu, sem eru örugglega mjög góðar, er haldin kvöldmatur honum til heiðurs á hverju ári. Ef að það er gert í algjörri alvöru þá er svaka seremónía með þessu öllu þar sem ljóð eftir hann eru lesin með reglulegu millibili og allir uppáklæddir. Við vorum ekki alveg svo kræf. Meira svona samtíningur af allri gerð og bjór með, við erum svo mikið inn í kúltúrnum þið skiljið.

Tónninn: Bessie Smith - St. Louis Blues

C.C.: Seriously, Niles, where do you keep all that cash?
Niles: Someplace you'll never get near.
C.C.: Oh, your mattress.
Niles: No. [pointing at Mr. Sheffield] Niles: His.

C.C.: I couldn't put a foot out of bed this morning.
Niles: Did someone put a rock on your coffin again?

- The Nanny (snilldin sem sá þáttur var)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home