Síðasta Spaugstofu kommentið í bili, ég lofa (kannski)...
Þessi snilld sem heitir Spaugstofan heldur áfram. Ég hélt að ég myndi vekja fólkið á ganginum þegar titraraatriðin runnu í gegn. Þau sem standa uppúr eru Edith Piaf, þvílíkt hugmyndaflug, titraði rjóminn og síðast en ekki síst 'Íslendingar á útsölu'. Talandi um kaupæði þá fór ég á smá flug í dag og skrapp inn í tónlistarbúð. Það tók mikinn viljastyrk að slíta mig frá henni, úff um púff. Slapp með skrekkinn með einn geisladisk á 500kr: Turin Breaks - the Optimist lp (sem er alveg ótrúlega góð). Heyrði líka í nýju Tom Waits plötunni sem virðist vera enn ein skrautfjöðurinn í hans hatt.
Búin að ákveða það að taka því mjög rólega þessa helgi. Komið að smá einangrun, hef gott af því. Lærði smá, horfði á sjónvarpið og kom hlutum í verk, mikið var. Fór reyndar í bíó í gær á 'Vanity Fair'. Allir sem hafa gaman af búiningamyndum (þetta er sérstaklega ætlað til þín mamma) sjáiði þessa. Mjög áhugaverð sýn á bókina, England á 19. öldinni með indversku ívafi. Er samt ekki alveg búin að mynda mér nákvæma skoðun á henni, er enn að ná mér eftir snilldini sem Gabriel Byrne var. Hjálp. Á svona bíóstundum er nauðsynlegt að hafa Hörpu með mér.
Well, verð að fara koma mér að því að lesa félagsfræði. Umræðuefnið er trú. Þið getið rétt ímyndað mér hversu bágt ég á með að halda mér saman.
ps. Er að fara sjá The Shawshank Redemption á morgun í bíó, uppáhalds uppáhalds mynd. Vei.
Tónninn: Tom Waits - Alice

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home