fimmtudagur, janúar 20, 2005

Seint fatta sumir...

Viti menn! Það er hægt að horfa á upptökur frá RÚV á internetinu! Það var ekki verið að segja mér frá því. Ég lofa að segja aldrei neitt ljótt um RÚV aftur, jah kannski. Mjög gott framtak fyrir fólk sem getur aldrei verið heima hjá sér. Haha, var að klára að horfa á síðustu Spaugstofuna. Ég get enn helgið að þeim. Pálmi sem Ólafur Ragnar er alltaf snilld, ekki sé svo síðan minnst á Hallgrím. "Nei heyrðu mig nú Gallup," hehe. Þegar þeir eru sem bestir eru þeir alveg á mörkum velsæmis eins og "Blindur fær Sýn" búturinn um árið, algjör klassík.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home