fimmtudagur, mars 10, 2005

Samsæri og hárteygjur.

Núna er ég algjörlega sannfærð. Þetta er þriðja tilraunin mín til þess að skrifa þetta blogg þar sem ég að kvarta um Vodafone. Þeir hafa náð völdum yfir alheiminum. Búið að vera vesen með símann minn: Get ekki hringt til annarra landa, gat ekki borgað símareikninginn minn og get ekki opnað reikning á netinu. Drasl er þetta. Símanum mínum var lokað þannig að ég ákvað að skrifa þeim e-mail þar sem ég útskýrði mitt mál. Þetta var svarið: Hringdu í okkur. Catch-22 anyone?

En í dag er mikill merkisdagur. Herrar mínir og frúr, í fyrsta skipti í næstum tíu ár (vá hvað maðuru er orðinn aldraður) er Sigríður Jónsdóttir með teygju í hárinu! Viljiði pæla. Þetta er meira út af nennu og nýsku heldur en nokkru öðru. Nenni ekki að finna mér góða manneskju til að klippa á mér hárið og tými því ekki heldur. Oh hvað ég sakna þess að nota þessi orð: nenni og tými. Hehe, power in my will eh Harpa...hint hint.

Tónninn: Tom Waits - Old Shoes (& Picture Postcards)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home