fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Vor í lofti.

Það var ekki möguleiki að vera inni í dag og læra, það var vor í lofti. Eina ráðið var að skella sér í ullarpeysu, strigaskó og taka smá rölt á bókasafnið. Heiðskýrt, sól en smá kul í lofti. Algjörlega fullkomið vorverður og það í febrúar. Hef bara sem minnst á móti þessu verð ég að segja.

ps. Stórfréttir frá Bretlandi....Karl og Kamilla bara að fara gifta sig. Verð bara að segja að ég sé nokkuð ánægð með það. Eftir að hafa þekkt hvort annað í meira en þrjátíu ár er ekki bara kominn tími til. Það leynist í mér lítill rómantíkus.

Tónninn: Michael Nyman - The Piano Soundtrack

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home