Fjallhaugur af vinnu
Nú er svo komið að heimalærdómurinn hefur náð í rófuna á mér. Jæja, þá er ekkert annað hægt að gera heldur en að setjast niður og byrja. Þarf að skila ritgerð í næstu viku í indverskri sögu og ég er að byrja núna, held að þetta sé mikil framför. Of margar ritgerðar hafa verið skrifaðar á 24 klukkutíma taugaáfalli, er ekki hollt til lengdar. Sé fram á allskonar hluti sem verða að gerast á næstu 10 dögum. Pakka, ekki bara ofan í tösku heldur að flytja tímabundið úr Pollock vegna þess að ég neita að borga meira fyrir herbergið mitt, redda stað til að sofa, læra, finna íbúð....listinn virðist vera endalaust. En ég er alveg tilbúin til að leggja smá á mig fyrir páskana, djöfull hlakka ég til.
Er meira að segja næstum búin að redda gistingu í London, mér að kostnaðarlausu. Stelpa sem var með mér í LPC verður heima hjá sér í London þegar ég strauja í gegn og bauð mér að gista heima hjá sér. Mjög gott í alla staði, frábær stelpa. Ekki er verra að hún býr víst í geðveiku húsi einhverstaðar í miðborg London. Sé mig alveg fyrir mér í posh crowdinu í London, passa örugglega vel in. Jah...
Vinnan bíður og bara klukkutími í CSI! Vei.
Tónninn: Bloc Party - Helicopter
Setningin:
Woman Fan: How do you write women so well?
Melvin Udall: I think of a man, and then take away reason and accountability.
- As Good As It Gets

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home