laugardagur, mars 19, 2005

Litlu fuglarnir mínir flognir...

Já, í dag þann 18. mars flugu landskonurnar Birna og Harpa af landi brott til fyrirheitna landsins: USA. Þar munu þær koma við í New York, þaðan til Panama sem verður stoppað í um klukkutíma og síðan onwards and upwards (jah eða downwards í þessu tilfelli) til Brasilíu. Já, Suður Ameríku ferðalagið mikla er hafið og ég er skilin eftir í Evrópu. Öfund. En nei svona í alvöru, er alveg fáránlega glöð með að þær hafi skellt sér. Muniði að haga ykkur stelpur mínar, sína að þið séuð frá góðu heimili. Hehe. Hafiði það alltof skemmtilegt, borðið góðan mat, hittið frábært fólk, sjáið allt það ótrúlega sem fyrirfinnst í heiminum og komiði heim í heilu lagi takk fyrir. Mun sakna ykkar í atóm.

Setningin:

"Though we travel the world over to find the beautiful, we must carry it with us or we find it not." - Ralph Waldo Emerson

Þið fallegu (á sál og líkama) einstaklingar ættuð ekki að vera í milkum vandræðum með að lýsa geislum ykkar á nýja heimshornið.

Tónninn:

Leaving On A Jet Plane - Chantal Kreviazuk

og

Knock on Wood - Amii Stewart (og allir gera dansinn, ég veit þið munið hann ennþá)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home