
miðvikudagur, maí 02, 2007

þriðjudagur, maí 01, 2007
HollandVitið þið hvað mér tókst að gera í gær? Nei, það er mjög góð spurning og enn skemmtilegra svar. Ég pantaði mér eitt stykki miða til Hollands takk fyrir! Ó já. Er búin að rembast eins og rjúpan með harðlífi síðan á jólum að koma mér yfir þennan litla skurð á milli Bretlands og meginlands Evrópu, en ekkert hefur gengið. Fyrr en í síðustu viku... Þessi sápa byrjaði á jólunum þegar hinir dásamlegu foreldrar mínir gáfu mér ferð til Hollands í afmælis/jólagjöf (stundum, en mjög sjaldan er gaman að eiga afmæli í desember). Hugmyndin var sú að þá gæti ég notað tímann til að hitta gamla skólafélaga úr Li Po Chun sem ég hef hreinlega ekki séð upp til hópa síðan við útskrifuðumst vorið 2004, þannig að það eru komin þrjú ár! Þetta virtist ætla að vera auðvelt mál: Einfaldlega að ákveða tíma og panta far. Ó það var ekki svona auðvelt. Ég hafði ekki tíma, Nils hafði ekki tíma, fór til London, var að læra, var að vinna...nefniði það bara, það var bara ekki hægt. Önnur ástæða fyrir því að ég hreinlega þurfti að koma mér til lands viðarskónna var að stórvinur minn Hector var í skiptinámi í Hollandi frá Ameríkunni og bara í önn þannig að þetta var síðasta tækifærið til að sjá hann í alltof langan tíma. Jæja, spólum fram á síðustu helgi. Allt í einu datt mér í hug að það væri hreinlega möguleiki að ég kæmist. Það myndaðist smá opna um næstu helgi þar sem ég gat troðið mér. Þá var það "bara" að skipuleggja bæði lærdóm og vinnuna. Til að gera langa sögu stutta: með miklum tilfæringum og mörgum "false starts" var ég hreinlega búin að gefast upp aftur. Þá kom hugljómun, ljómi eins og ég hef viljað kalla.
Allt í einu var ég ekki einungis að fara til Hollands heldur kom í ljós að það var verið að skipulegga massa reunion akkúrat þessa helgi og allir voru að fara hittast í Utrecht, skólanum sem Nils og Tessa eru í. Fólkið var hreinlega að bíða eftir því að ég kæmi að heilsa upp á það. Þannig að meðal annarra verða Nils (Norge), Tessa (England), Vincent (Holland/Ísland), Hector (Spánn, en er að læra í USA) og mögulega Elías (Finnland) ekki bara í sama landinu heldur í sama bæjnum. Þetta er alveg hreint stórkostlega skemmtilegur hópur af fólki sem var allt á mínu ári og við vorum öll saman í leiklist. Ég hef ekki séð Tessu síðan á fyrsta ári hér í Edinborg, Vincent kom í smá heimsókn til Íslands 2004 að ég held og Elías og Hector hef ég ekki séð síaðan 2004. Að auki verður fullt af öðru fólki frá mínu og árinu á undan þarna líka. Talandi um góða tímasetningu.
Þetta er ekki búið. Pantaði miðana og sveif á bleiku skýji allan daginn. Kom síðan heim og ræddi þessi mál við Ingibjörgu og Kristján. Upprunalega planið var að vera í Hollandi frá föstudagskvöldi til sunnudagsvölds. Kemur þá ekki í ljós að mánudagur er frídagur hér í Skotlandi og þau verða í fríi. Bjóða mér barasta upp á að vera einn dag í viðbót. Þannig að núna er ég að fara til Hollands frá föstudagskvöldi til mánudagskvölds. Þvílík algjör og endalaus snilld. Er núna svífandi á tveimur bleikum skýjum, eitt fyrir hvorn fót auðvitað.
Þannig að núna er bara að setja í fluggrírinn, overdrive og auxiliary power og gefa í með lærdóminn, sem gengur svona nokkuð vel akkúrat núna. Má nefna að ég er að fara í tvö próf í þessum mánuði þann 10 og 14 maí. Vitiði hvað, mér er alveg sama. Það reddast! og á meðan verð ég í Hollandi (hvet ég alla til að taka sér tíma og lesa hversu oft ég hef skrifað 'Holland' í þessum litla pistil).
Fólkið: Mamma og pabbi, algjörlega!
Landið: Holland, haha, skrifaði það einu sinni í viðbót.
Þátturinn: Frasier, ó minn heilagi hvað þetta er gríðarlega góður þáttur.
Greinin: Microbus crashes and Coca-Cola cash: The value of death in 'free-market' El Salvador, læra læra læra
Smásagan: Rita Hayworth and the Shawshank Redemption eftir Stephen King, braust í grát þó að ég sé búin að sjá myndina oft og mörgu sinnum.
Dagurinn: Föstudagur, því þá fer ég til Hollands, haha og enn einu sinni.
Tilvitnunin:
Frasier: "You try ice-skating and blowing a jug while your heart is breaking!"
- Frasier, að lýsa Nashville on Ice: The All-Skating Country Jamboree
