þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Læra, læra, læra....etc.

Jæja, núna er aldeilis komið að því: Próf! Mannfræði 8. desember (vei, á afmælisdaginn, verður varla betra, kaldhæðni) og Félagfræði 10. desember. Ritgerð fyrir þennan föstudag um Sanskrit leiklist(indverska leiklist). Horfi með tár í augum á bunka af bókum sem ég á enn eftir að lesa. Held að ég sé komin á lista yfir nemendur sem taka flestar bækur á bókasafninu. Ekki svo minnst á fólkið sem er búið að borga mest í sektir.....annað hvert skiptið sem ég kem á bókasafnið byrja ég á því að fara að afgreiðsluborðinu og borga....hrmph, sé fyrir mér allar bækurnar sem ég gæti keypt fyrir þá peninga.

Lenti reyndar í mjög undarlegu atviki í dag á bókasafninu. Var að leita að bókum fyrir ritgerðina mína og endaði með því að finnast ég vera eins og karakter úr Kafka bók. Fann númerið á bókinni og leið mín lá á hæðina þar sem hana mátti finna. Hæðin geymir allar þær bækur sem eru ekki mikið notaðar og númerið var frekar skrýtið. En með bókasafnsfræðingablóðið mitt var ég alveg viss um hvert ég var að fara. Þar hafi ég algjörlega rangt fyrir mér. Hrmph. Stóð fyrir framan hilluna sem ég vissi að bókin væri og greip í tómt. Horfði aftur og aftur á tölurnar en ekki var bókin þarna. Þið verðið að sjá fyrir ykkur þúsindir af bókum í endalaust mörgum hillum margar hverjar á tungumálum sem ég hef aldrei heyrt um. Endaði með því eftir marga hringi að spurja einhvern um að hjálpa mér. Viti menn, maðurinn labbaði beint að réttu bókinni og ég veit enn ekki hvernig hann fór að því. Þvílíkir töframenn sem þessir bókasafnsverðir eru!

Aukaplan fyrir þessa viku að fara á jólaleikrit stúdentaleikhússins sem heitir: Troy the Panto! sem er grínleikrit um Illiad kviðuna. Ætti að vera algjörlega frábært. Síðan er búið að plana leikhúsferðir með Hörpu um jólin, snilld.

Well, hrúga af bókum bíður mín...Kafka kafka kafka.....

"There is a theory that states: "If anyone finds out what the universe is for it will disappear and be replaced by something more bizarrely inexplicable."There is another theory that states: "This has already happened." - Douglas Adams


fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Jólaskap.

Það var kveikt á jólaljósunum í miðbæ Edinborgar. Þvílík og önnur eins frábær snilld að vera í Evrópu um jólin. Ekki misskilja: Að sitja á indverskum veitingastað á aðfangadag, borða góðan mat og horfa á bíómynd er ótrúleg upplifun en jafnast ekkert á við jólin heima. Heyra gömlu góðu jólalögin, þó að þau séu á ensku og norsku (hehe, það var norskur kór að syngja). Það er ekki hægt að lýsa því hversu fallegir garðarnir við Princes Street eru, og hvað þá þegar búið var að kveikja á ljósunum. Alveg frábært.

En held að hápunkturinn hafi reyndar ekki verið þegar kveikt var á ljósunum heldur þegar fyrsta jólalagið var spilað: John Lennon - Happy Christmas (War is Over). Eitt af fallegustu jólalögum sem hefur nokkurn tímann verið samið og að spila það sem fyrsta lag í breskri borg tel ég vera mikið afrek.

Búin að panta miða heim, jah reyndar gerði hinn yndislegi ritarinn minn hún móðir mín það (takk mamma). Ég kem 14. desember og fer aftur 8. janúar. Úff, vegna þess að ég fattaði ekki hversu ferðasjúkir íslendingar eru þá þarf ég að fljúga í gegnum London og þaðan uppeftir til Glasgow. Verður áhugavert að sjá hvernig það fer, þarf að fara frá Heathrow til Stanstead með allan farangurinn.

Lærdómur bíður. Bara svona til að sýna hvað ég er að lesa (smá monntin og stollt, ekki sé minnst auglýsingagjörn (var að búa til orð)):

About the organisation of the coastal villages - “But after a close inspection of one of them, or preferably of several, we find that in reality each coastal settlement consists of a cluster of smaller villages. We find also that every small village has definite constituent parts: a central public place surrounded with one or two rings composed of stores and dwellings. Where these are kept separate, the inner ring is formed by the storehouses and the dwellings line the outer side of a circular street.” - The Ethnography of Malinowski by Michael W. Young.

Á fóninum - Emergency 72 með Turin Breaks

laugardagur, nóvember 20, 2004

Það sem gerist...eða ekki...

Vá, er farin að skammast mín smá verð ég að viðurkenna...Er verri hérna með bloggið heldur en í Hong Kong sem er svolítið fáránlegt miðað við að ég var miklu uppteknari þar heldur en hérna í Edinborg. Jah, það er kanski smá lygi...bara upptekin á annan hátt. Ekki misskilja það er alveg FULLT að lesa en svo mikið annað.

Hef t.d. séð meira af leikritum en ég hélt að væri mögulegt á svona stuttum tíma. Bedlam Theatre: http://www.bedlamtheatre.co.uk er stúdentaleikhúsið hjá Edinborgar háskóla og miðstöð skemmtilegs fólks og ódýrra leikrita. Kostar um 400 krónur inn. Snilld í alla staði. Flestir vinir mínir eru líka oftast eitthvað að sniglast þarna í kring, surprise surprise.

Leikrit sem ég hef farið á:

Equus - Peter Shaffer
Glass Minagere - Tennessee Williams
Far Away - Caryl Churchill
Arsenic and Old Lace - Joseph Kesselring
Comic Book Story - Idil Sukan
Phaedra's Love - Sarah Kane
The Bear - Anton Chekov

svo að ég nefni nokkur, þau eru fleiri. Ah sá líka Othello í "alvöru" leikhúsi á miðvikudaginn sem var mjög skemmtilegt. Fór alveg óvart með vini mínum frá Austurríki og fengum mjög ódýra miða. Út af því að við spöruðum svo mikið á miðunum fórum við líka út að borða á tælenskum stað sem var alveg frábært. Undarlegt að hugsa til þess að ég sé ekki að fara til Tælands núna um jólin, yndislegur staður.... hlakka samt alveg rosalega að koma heim.... smákökur, snjór, jól...og auðvitað líka fólkið (já harpa ég er búin að lofa að koma starx heim).

Er búin í prófunum 10. desember þannig að ég mun koma fljótt eftir þann tíma, er ekki alveg viss um hvenær. Fer bara í próf í félagsfræði og mannfræði. Indversk menningarsaga er bara með eitt próf, er nokkuð sátt með það. Skólinn gengur vel. Er búin að skila nokkrum ritgerðum inn og er búin að fá gott fyrir þær. Kennararnir eru yfirhöfðuð ágætir nema kannski sá sem kennir mér indverska menningarsögu. Er í kringum sjötugt held ég, virðist allaveganna vera um það bil, og er mjög svo af gamla skólanum. Menntaður í Oxford og hefur verið að kenna í meira en 30 ár, orðin frekar lúinn sá gamli. En eins og mamma sá í mannfræði þá var kennarinn minn þar algjörlega frábær, ekki svo minnst á svolítið myndarlegur (hehe) þannig að ekki get ég kvartað.

Eftir að Rupert (fartölvan mín) bilaði varð ég að kaupa mér nýja og það er búið og gert. Þvílíkt vesen að vera háður þessum fjanda, en er algjörlega nauðsynlegt að hafa í háskóla. Get ekki ímyndað mér að vera án hennar. Er DVD spilari, Internet, útvarp og allt annað sem er hægt að hugsa sér. Var að missa mig án tónlistar og bíómynda. Talandi um bíómyndir þá skellti ég mér í bíó í dag: After the Sunset með Pierce Brosnan. Erla ef að þú sérð þetta blogg þá skipa ég þér hérmeð að sá þessa mynd NÚNA... þetta er Laws of Attraction nema hvað Pierce er oftast ekki í skyrtu, enough said.

Var að tala við Söru vinkonu mína frá Bandaríkjunum og mér hefur verið tilkynnt að ég eigi að mæta til Wisconsin 8 júlí 2006 til að vera Maid of Honour. Ó já! Sjáiðið þetta ekki fyrir ykkur. Sigríður Jónsdóttir í hvítu brúðkaupi í bleikum ballkjól, já ég líka. Svona til að koma því alveg á hreint þá hef ég algjörlega neitað því að koma fram í svoleiðis marenstertu kjól. Er farin að hlakka hryllilega til.

Talandi um tilhlökkun þá er svolítið RISASTÓRT að gerast rétt handan við hornið, nánar til tekið nýja árið.... ÉG ER AÐ FARA Á RIVERDANCE MEÐ HÖRPU!!! fékk næstum hjartaáfall þegar ég komst að því að ekki einungis er Riverdance að fara til Bretlands heldur að koma til Edinborgar. Er búin að kaupa miða á þriðja bekk fyrir miðju. Nei get ekki einu sinni skrifað meira, er alveg að missa mig... Miðað við hvernig ég og Harpa misstum okkur þegar við fórum saman til Írlands þá sé ég algjöra snilld fyrir mér.... vá fæ enn flassbakk frá því þegar við vorum á írska pöbbakvöldinu og þegar við misstum báðar næstum því af flugvélinni heim til Íslands.... ég þurfti að kaupa mér American Beauty á spólu og Harpa fór í vitlausa vél... aaahhh memories...

Jæja, áður en ég segji eitthvað sem ég ætti ekki að segja á prenti (hint hint Harpa) þá hætti ég þessu núna, er víst að fara í parte hjá fólki í Bedlam... ekki alveg eins flott og Caitlín vinkona mín sem var boðin í matarboð hjá forseta íhaldsflokksins í Oxford en jæja hún er enn að leita að eiginmanni fyrir mig þannig að ég fyrirgef henni.

pg. Fanney þetta blogg er tileinkað þér:)