mánudagur, september 25, 2006

Lítil, rauðhærð stelpa!

Já, í þennan stóra heim er komin lítil, rauðhærð stelpa! Nýfædd og "langsætust" (svo að ég vitni nú í nýbakaða foreldrana). Bestu fréttir í heimi og risabónus að krílið er rauðhært! Gerir mig einstaklega glaða. Get ekki beðið að sjá litlu baunina.

Hún á sama afmælisdag og Will Smith, Michael Douglas, Catherine Zeta-Jones, Christopher Reeve (Súperman), William Faulkner (einn af bestu rithöfundum allra tíma), Michael Madsen (töffari).

Það sem gerðist á þessum degi:


1493 - Christopher Columbus set sail from Cadiz, Spain, with a flotilla of 17 ships on his second voyage to the Western Hemisphere.

1976 - The Rock band U2 forms at a meeting at drummer Larry Mullen's home.

Já, margt merkilegt hefur gerst á þessum degi og núna bætist enn einn stórviðburðurinn við. Er þessi litli dýrðlingur einnig Vog:

Vogin

Árstími Vogarinnar er haustið, þegar litir eru sterkir í náttúrunni og sumarið og uppskeruvinnan er að baki. Veður eru enn ágæt og því góður tími til að sinna félagslífi. Fyrsti mánuður haustsins er rómantískur og það fólk sem fæðist í Vogarmerkinu þykir ljúft, listrænt og félagslynt.

Jafnvægi og réttlæti

Til að skilja Vogina þarf að horfa á 'tákn' merkisins, vogina sem hefur það hlutverk að vega og meta (uppskeruna). Enda er það oft svo að fólk sem fæðist í þessu merki hefur sterka réttlætiskennd. Það er alltaf að leita að jafnvægi og því sem stillir vogina af. En þetta er hægara sagt en gert, og því geta Vogir sveiflast til. Ef of mikið er sett á aðra skálina þá hallar vogin. Fyrir vikið er Vogarfólkið stundum eftirgefanlegt, stundum hart, stundum ljúft, stundum ákveðið. Þetta er leit að jafnvægi, að 'balance'. Sumar Vogir eru vel stilltar, aðrar sveiflast frá einum pól til annars og eru 'brokkgengar' eins og einn ágætur maður sagði.

Samvinna og sjálfstæði

Það sem einkennir framkomu Vogarinnar, eða það sem hún reynir að birta útávið, er ljúfleiki. Öðrum megin á skálinni er ég og hinu megin við. Þetta er spurning um jafnvægi á milli mín og þín. Jafnvægi á milli sjálfstæðis og samvinnu er eitt af því sem Vogin leitar eftir. Til að samvinna gangi vel reynir hún að koma vel fram við aðra og notar þá ljúfleika, bros og sannfæringarmátt orðanna. En þær Vogir eru einnig til sem færast of mikið í átt til ég-sins og þá er valtað yfir umhverfið. Einnig er talað um hina 'ljúfu frekju', eða þá Vog sem stendur sterk bæði í ég-inu og samvinnunni. En vissulega vilja og reyna flestar Vogir að vera fágaðar, kurteisar og yfirvegaðar.

Félagsmálamaður og pælari

Stjórnandi Vogarinnar er Venus og 'frumþátturinn' er loft. Venus er pláneta fegurðar og samvinnu, og loftið er táknrænt fyrir rökhugsun. Vogir eru því oft félagsmálamenn, listamenn, pælarar og pólitíkusar sem berjast fyrir réttlætismálum eða boða ákveðna heimssýn og kenningar. Stundum sameinast þetta allt í einum og sama manninum.

Það sem örvar Vogina

Til að endurnýja og viðhalda lífsorku sinni, þarf Vogin að dvelja í félagslega og hugmyndalega lifandi umhverfi. Það þýðir að hún þarf að hitta fólk sem örvar hugsun hennar. Hún þrífst illa í einangrun og andlegu tómarúmi. Hún tapar orku við slíkar aðstæður. Vogin þarf á fólki, félagslífi og samvinnu að halda. Það á reyndar við um flest fólk, en þetta skiptir öllu máli fyrir Vogina og varðar það að næra lífskraftinn.
Þegar talað er um 'Vogina' og 'Vog', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Vogarmerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.
Fæðingar, fróðleikur og fegurð.

Þá er það komið svo að hið mikla yndi hún Erla er komin á fæðingardeildina. Sendi ég henni hér með ofurhugskeyti og vona að allt fari á hinn besta veg. Hlakka mikið til að heyra af henni og litla krílinu, plús að sjá eins margar myndir og mögulega hægt er að hlaða á internetið! Veit að þú stendur þig kona!

Mætt aftur á bókasafnið, enn og aftur. Grunar að ég muni eyða gríðarlegum tíma hérna í haust að fræða mig. Því miður reyndar að næra mig líka, maturinn í mötuneytinu er frægur fyrir gumsleikann sem um hann flæðir. Búin að vera minna en viku í skólanum og vinnan hreinlega hleðst á mig.

....síðasti púnkturinn er fegurð. Ég var að sjá nýjasta trailerinn fyrir Casino Royal. Hef verið staðföst stuðningskona þess að Clive Owen átti að vera næsti Bond, held það reyndar enn. En USS! Það er langt síðan ég hef verið svona spennt fyrir Bond mynd, lítur alveg HRYLLILEGA vel út...og ekki er Bondinn sjálfur (Daniel Craig) slæmur. Kíkið á þetta: Bond. Fékk gæsahúð og allskonar dæmi.

Myndin: Children of Men, talandi um Clive Owen. Sá hana um helgina. Langt síðan ég hef skemmt mér eins vel í bíó. Sérstaklega vel gerð (þó að vanti smá uppá handritið). Clive Owen er minn, gjörsamlega minn.
Bókin: Vernon God Little - DBC Pierre, tær snilld
Veðrið: Grenjandi rigning með hléum sem gerir það að verkum að ég veit ALDREI hvenær rignir (er búin að búa hérna í 2 ár, held að ég ætti nú að vera farin að læra á þetta)
Verkefnið: Klára að flytja út úr íbúðinni sem ég bjó aldrei í (er búin að finna annan leigjanda)
Lagið: Don't Dwell - Tracy Chapman

miðvikudagur, september 20, 2006

Blogghótanir.

Já, það er greinilegt að ég er mikið elskuð í bloggheiminum eftir að hafa lesið gestabókina. Smá redemption: Ég bloggaði 4. september en hafði óvart vistað það sem 'draft', misheppnunin mín dreyfist líka yfir internetið, það er staðreynd.

Önnur staðreynd er að ég er nú loksins komin til Edinborgar, sweet Edinburgh. Og er byrjuð í háskólanum, vá hvað ég er byrjuð í háskólanum. Og í nýju vinnunni minni. Og reyndar bara í nýja lífinu mínu. Kishani, Chris, James OG Noa (allir mjög góðir vinir, mínir líka) fokkuðust eitthvað til útlandi (ég hef reyndar engin réttindi til að kvarta yfir því). Kishani og Chris til Suður Kóreu, James til Hong Kong og Noa til Ástralíu, já meira að segja HINUMEGIN Á HELV HNÖTTINN!

Plús að ég er núna orðin opinber au-pair, ó já. Gengur bara afskaplega vel held ég. Ég og Kjartan náum vel saman, höfum sameiginlegan áhuga á fótbolta og sjónvarpsglápi og hann hefur endurlífgað gleðina hjá mér að spila spil. Ólsen ólsen, Rússi og Veiðimaður eru í miklu uppáhaldi.

Inn á milli þess hef ég verið að skipta um íbúð, borga reikninga, fá nýjan síma sem ég kann ekkert á og reyna að troðast til að fara til London að sjá Moon for the Misbegotten með Kevin Spacey. Já, og að fara í skólann sem var að byrja í gær að alvöru. Og þá meina ég að ALVÖRU. Var að koma úr tveggja klukkutíma fyrirlestri um flóttamenn og er á leiðinni í annan um afríska sögu.

Fögin:

Imagining Anthropological Research (gildir 10% til LOKA LOKA einkunnar, úps)
Refugees
Social Development
Introduction to African History

er bara fjandi sátt með þetta, ekki að drukna í skólaleiðindum eins og á síðustu önn. En á móti kemur að ég er að drukna í lestri. Gengur vel núna en veit að þetta verður skrambi erfitt seinna meir þegar ritgerðirnar koma inn í.

Lagið: One for Daddy-O - Miles Davis
Myndin: Alien (ó kræst hvað ég get ekki fengið mig til að horfa á hana, snilldar hryllingsmynd)
Sjónvarpsþátturinn: 3rd Rock from the Sun (sannir endurfundir)
Leikurinn: Ó hvað ég þarf að finna mér áhugamál
Tilvitnunin:

Dick Solomon: [reading Dr. Seuss] My God, this man is a genius!
________________________

Harry Solomon: Dick, I can't feel the entire right side of my body. Will someone please call 116?

______________________________

Dick Solomon: [reading the Bible] Wow, these people begat their brains out!

____________________________

Dick Solomon: You want the truth? You want the truth? Well, I can't handle the truth!

____________________________

Dick Solomon: I'm not finger-pointing...
[points at Mary]
Dick Solomon: but it's YOUR fault! YOU!

...bara alltof mikið gott efni.....

mánudagur, september 04, 2006

Já, ég er blogghörmung.....

Góðan daginn allir saman.

Já þetta er víst orðið að staðreynd: Ég er blogghörmung en ég hef alltaf ástæður fyrir því (jah, allaveganna afsakanir). Aftur komin til Edinborgar og gerði mér grein fyrir því að þetta er fyrsta skipti síðan ég var á fyrsta ári í framhaldsskóla (sex ár) sem ég bý á einum stað í lengri tíma en tvö ár. Er þetta heilbrigt? I think not. Allaveganna, bara svona stutt til að láta vita að ég sé enn á lífi en bloggið byrjar fljótlega að alvöru þegar skólinn byrjar að alvöru (sem er eiginlega í næstu viku, sjæsa)....

Tónlistinn: Ain't Misbehavin' - Louis Armstrong
Myndin: PotC - Dead Man's Chest (naaahahaha, Alex Norton var í Pirates, snilldin ein, bjargaði myndinni)
Bókin: Women and Film: A Sight and Sound Reader edited by Pam Cook and Philip Dodd
Aðgerðin: Fara í bankann! úff hvað ég þarf að fara í bankann.....