miðvikudagur, nóvember 30, 2005

BÚIN AÐ UPPFÆRA MYNDIRNAR!

Tékkiði á myndalinknum, búin að uppfæra hann. Glory og victory!
Lok annar

Þá tekur að líða að lokum þessarar annar, hrikalega hleypur tíminn áfram. Mamma fór í gær eftir mjög vel heppnaða heimsókn þar sem við fórum á norska aðventutónleika, nútímaballet, versluðum eins og brjálæðingar (að okkar eigin sögn) og slökuðum á inn á milli. Reyndar var Glasgowferðin alveg ótrúleg, hef sjaldan séð svona sjó af fólki, meira að segja í Asíu. Þvílíkt og annað eins, var eins og Kringlan á spítti daginn á Þorlkáksmessu. Vorum líka alveg búnar eftir þennan dag. Keyptum jólagjafir, sem samkvæmt minni skoðun voru einstaklega vel valdar og vel heppnaðar, hehe vona að ég hafi rétt fyrir mér. Vona að hún móðir mín komi sem fyrst aftur til Edinborgar, alltaf gaman og róandi að fá hana í heimsókn.

Stórar fréttir: VIÐ ERUM KOMIN MEÐ INTERNETIÐ! Þvílíkur léttir, fattaði ekki hvað er gott að hafa það fyrr en við tengdumst aftur. Get lært betur, skoðað hvað sem er hvenær sem mér dettur í hug og verið oftar á MSN. Ætla að reyna að setja fleiri myndir upp fljótlega, af fólkinu sem ég bý með og Edinborg. Nauðsynlegt að þið vitið hvernig þetta fólk lítur út. Ekki satt.

Aðrar stórar fréttir: ÉG ER KOMIN MEÐ SJÓNVARP! Fékk það í afmælis/jólagjöf frá mínum yndislegu foreldrum, algjör og púra snilld á alla kannta. Ég, Chris og Kishani eyddum næstum öllum eftirmiðdaginum og kvöldinu í að horfa á bæði vídjó og sjónvarpið. Vorum vakandi til 6 um morgunin að spjalla. Gott að taka sér smá pásu, svaf svo út í dag (var ekki í skólanum). Þurfti mjög á því að halda.

Frábærar fréttir: Fékk hvorki meira né minna heldur en 80 stig fyrir ritgerð sem ég skrifaði fyrir trúarbragðafræði, sem er A. Hef aldrei fengið svona háa einkunn síðan ég byrjaði í Edinborg og hef sjaldan heyrt að fólk fái svona mikið. Fékk algjör sjokk þegar ég sá þetta, góð byrjun fyrir prófin sem byrja í næstu viku (ég byrja ekki fyrr en í vikunni þar á eftir að ég held).

Ah, back to the television!

Tónlistin: Kingdom of Heaven Soundtrack
Bókin: Jews and Christians: Who is your neighbour after the Holocaust? ed. Michal Bron Jr.
Myndin: Fear and Loathing in Las Vegas
Leikarinn: Gabriel Byrne, tilvonandi eiginmaðurinn minn
Manneskjan: Mamma, takk fyrir að koma!
Síðan: Kindur að jarma jólalög

föstudagur, nóvember 18, 2005

Út og suður, norður og niður.

Ég veit að ég er búin að nefna þetta alltof oft, og að flestir eru ekki endilega sammála mér en djöfull elska ég Spaugstofuna. Var að horfa á gamla þætti í gær og hélt að ég myndi missa mig þegar þeir fóru að gera grín að Út og Suður, og Harpa...ekki segja mér að þér datt ekki Birna í hug?! Af hverju er hún ekki í Spaugstofunni, þetta var nákvæm eftirherma...hún kom á undan! Treysti því samt Harpa að þú lærir þetta utan af mér til skemmtunar, takk fyrir.

Ah og hér er ein dæmisaga sem ég hef ákveðið að nefna: kaldhæðin örlög góðverksins. Fór í trúabragðafræði í dag og sá mann með fullt fangið af kössum og blöðum að reyna að komast inn í bygginguna. Eins yndisleg og hjálpleg ég er þá ákvað ég að hjálpa honum þrátt fyrir að ég væri líka með fullt fangið af allskonar varningi: blöðum, geisladiskum, lítilli köku og kakó. Mér tókst í stuttu máli að ausa kakóinu ekki einungis yfir sjálfa mig en yfir teppið í ganginum. Hvað er málið? Ég tel að það ætti að verðlauna mig fyrir að sína að ég sé frá góðu heimili en ekki fá kakó yfir mig alla. Þetta þýðir að ég mun labba um í allan dag með kakóblett á úlpunni minni og að ég verð að fara með hann í hreinsun. Hrmph....verð að úthugsa þessi góðverk aðeins betur.

En allt er ekki tapað, vonandi. Er að fara í klippingu í fyrsta skipti síðan ég fór að heiman. Þoli illa að leifa einhverjum ókunnugum að þukla um mitt hár, en ég fæ 50% afslátt þannig að ég verð að reyna. Sjáum til...

Og deginum var bjargað í gær af lítilli hnátu í Grindavík: Spjallaði við Ingibjörgu frænku á MSN. Snilldartól þetta internet. Góðir hugstraumar til hennar!

Geri mér grein fyrir að ég hef ekki beint verið að skrifa mikið um skólann en það er mjög góð ástæða fyrir því: Er búin að vera á kafi í verkefnum síðustu tvær vikurnar og vill frekar skrifa um eitthvað annað á blogginu heldur en meira nám. Mun koma með almennilegt update síðar meir.

Tónlistin: The Sountrack form Reservoir Dogs
Bókin: Jar City eftir Arnald Indriðason, hehe, fann eintak á ensku fyrir stuttu
Bíómyndin: Bleiki Pardusinn með Peter Sellers....ég fór aftur í barnæsku,
Tilvitnuninn: "What kind of candle is zis?" - Inspector Jacques Clouseau

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

JEREMY IRONS!

Ég er að fara að sjá Jeremy Irons á sviði! Ó minn GVÖÐ! Er enn í sjokki. Lá í rúmminu í gær að lesa blaðið, auðvitað leikhúsauglýsingarnar í þeirri veiku von að það væri eitthvað svakalegt að koma á svið, gat nú varla farið að sjá Kevin Spacey aftur (jah, if I had the money...). Viti menn! Neðst til vinstri á síðunni var auglýsing fyrir Embers eftir Christopher Hampton (Dangerous Liasons, klikkað leikrit) og hver var aðalleikarinn: JEREMY IRONS! Hjálp, mamma ég kenni þér um þetta...Hef ekki einu sinni séð Brideshead Revisited, en reyndar samt örugglega allar hinar myndirnar sem hann hefur leikið í. Skellið ykkur á þessa síðu til að kíka á nánari smáatriði.

Maðurinn: Jeremy Irons, Jeremy Irons, Jeremy Irons!

Tilvitnuninn: "Do you know that in the last two years I have been with eleven different women. Most of them were half my age, not one with a sense of humour I understood. Now I don't date these girls because they're well read. I gave one a copy of A Farewell to Arms, she thought it was a diet book." - The Mirror has Two Faces

Smá note: Hver sem hefur ekki séð þessa mynd (The Mirror has Two Faces), vill sá hinn sami keyra/labba/hlaupa í Grindavík og ná í eintak af spólunni sem er vel geymd í þartilteknum skáp, keyra/labba/hlaupa heim til sín og stinga henni í tækið. Þessi mynd er gull. Mamma mun staðfesta það að ég hef séð hana oftar en heibrigt er og hlæ alltaf, þá meina ég alltaf. Bara smá auka tilvitnun til heiðurs þessari mynd: "She eats carrots now! Isn't that tragic." Og já, ég skrifaði báðar tilvitnanirnar frá minni.

Lagið: Be Prepared - The Lion King (for obvious reasons)

Bíómyndin: Harry Potter and the Goblet of Fire (kemur út á morgun, Snapeilicious indeed)

Bókin: Lady Chatterley's Lover eftir D.H. Lawrence

föstudagur, nóvember 11, 2005

Samræmd stúdentspróf.

Jæja, það tók ekki lengri tíma heldur en þetta fyrir mig til þess að hafa eitthvað á hornum mér, og þvílíkur hnullungur sem þar er: Samræmd stúdentspróf. Gerði þau mistök að kíka inn á Heimasíðu Námsmatsstofnun og leit þar inn á sýnisprófin fyrir þessi árlegu próf. Þvílík og önnur eins vonbrigði, held að það séu bara ekki til nein orð til að lýsa því nema eitt: KROSSAPRÓF! Hvað er málið? Er ekki allt í lagi með þetta fólk, hvernig dirfist það að enda áralanga námsgöngu með krossaprófum? Sérstaklega fyrir ensku?! Eina sem fyrirfinnst er lesskiliningur, hlustun og málfræði. Ekki sé ég vott af frjálsri ritun neinstaðar. Smá tilkynning: Ég hefði aldrei getað höndlað námið mitt ef að ég hefði ekki verið þjálfuð í að skrifa á ensku, hefði meira að segja mátt vera miklu meira. Tölum núna aðeins um krossapróf: Ég hata krossapróf. Mér finnst þau vera hallærisleg, vera full af allskonar vandamálum og það er staðreynd að sumir eru betri heldur en aðrir í að taka þau. Er ekki markmiðið með menntun að allir hafi jafnrétti? Það hélt ég. Hafa þetta allaveganna 50/50.

Ekki var íslenskuprófið betra. Fullt af krossaspurningum og lesskilningi. Smá ábending: það er hægt að lesa bókmenntir á margan hátt. Og vitiði hvað: Ekki var ritunin þar til að láta mér líða betur. Efnið sem átti að skrifa um voru GSM SÍMAR!? Hvað kom fyrir þá hefð að skrifa um ljóð og bókmenntir? Ég er ekki sátt.

Ef að stjórnmálamennirnir halda að þetta jafni bilið á milli framhaldsskóla þá skjátlast þeim algjörlega. Það skiptir engu máli: MR, MH og Versló verða enn bestu skólarnir á Íslandi, þeir undirbúa bara nemendurna sína sérstaklega fyrir samræmduprófin. Mun örugglega bara stækka bilið. Er ekki betra að hver og einn skóli skrifi sín eigin próf? Nú er alveg komið nóg, hvað kom fyrir íslenska menntakerfið?

Tónlistin: OK Computer - Radiohead
Bókin: Veiled Sentiments: Honor and Poetry in a Bedouin Society
Bíómyndin: The Constant Gardener
Þátturinn: Star Trek Voyager (Q be mine)

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Say Hallelujah

Hún söng þetta líka....rosalega vel samið....by the way, verið þið viðbúin....þegar ég hef tíma mun koma hörkugagnrýni á samræmd framhaldskólapróf. Þvílíkt rugl.

Say Hallelujah
Throw up your hands
The bucket is kicked
The body is gone

Close your eyes
And bow your head
To rest your soul
And to praise the dead

Say Hallelujah
Throw up your hands
The bucket is kicked
The body is gone

Dry your eyes
And stand upright
Put a smile on your face
He wouldn't want us to cry

The sun will rise
The stars will shine
Turning day to dusk
And night to dawn
We'll pass on
But until that time

Say Hallelujah
Hallelujah
Say Hallelujah
Hallelujah

Say Hallelujah
Throw up your hands
The bucket is kicked
The body is gone

Have mercy
It's a wonderful life
Eternal rest for the weary
Mourners party tonight

Say Hallelujah
Throw up your hands
The bucket is kicked
The body is gone

Wave your hands
But don't say goodbye
We're all gonna meet you
On the other side

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

It's alive...It's alive...

Gooden tag ya alle. Vá, er alveg á síðasta snúning þessa dagana...partí partí á laugardeginum, innflutningspartí þar sem nokkrir flugeldar ákváðu að bilast. Ég og Chris tókum það að okkur að sjá um smá flugeldasýningu fyrir gestina sem endaði með því að einn flugeldurinn skaust yfir vegginn, yfir götuna og beint á hús. Munaði litla putta að hann hefði endað inn um glugga hjá einhverjum. Skoppaði af veggnum, niður á götu og sprakk svona 10 metra frá gangstéttinni. Vorum alveg viss um í smá tíma að við hefðum valdið hjartaáfalli hjá einhverri gamalli ömmu. En allt fór vel. Smá drama.

Argh, fór síðan á Tracy Chapman á sunnudaginn. Ó minn Gvöð á himnum. Sat í þriðju sætaröð, sá hana fullkomnlega....ekki nóg með það heldur spilaði hún ÖLL, á meina ég ÖLL, uppáhaldslögin mín:

For My Lover (lag nr. 2, ég dó)
Talkin' 'bout A Revolution
Behind The Wall (ein á sviði, fékk tár í augun, klikkað lag)
Baby Can I Hold You
Fast Car (það eru engin orð)
The Promise (ekki frægt lag og trúði því ekki þegar hún tók það...gæsahúð allstaðar)
Another Sun (breytti því og kom frábærlega út)
Give Me One Reason (síðasta lag eftir "standing ovation", getur ekki endað betur)


Síðustu tvær vikurnar hef ég verið á kafi í mannfræðiverkefni sem ég var að skila fyrir hálftíma. Þetta var hópverkefni þar sem við áttum að útskýra hvernig fólk hegðar sér í á vissum svæðum. Við völdum Waverley járnbrautastöðina og eyddum mörgum klukkutímum að horfa á og spjalla við fólk. Þurftum síðan að skila 4000 orða skýrslu, klikkun. En það sem bjargaði öllu saman var að ég var með geðveikum hóp, kom rosalega vel saman. Er boðið í mat í kvöld þar sem við ætlum að fagna þessu öllu saman. Ef að þið viljið lesa þessa snilld sem er verkefnið endilega látið mig vita....

Anyhoo....er frekar heiladauð í dag...bleh, ekki gott að horfa svona mikið á CSI, sé vísbendingar út um allt.

Tónlistin: The Postal Service - We Will Become Silhouettes
Kvikmyndin: Frankie & Johnny
Þátturinn: CSI (úff, skegg er hættulegt)
Bókin: The Foundation - Isaac Asimov